F. í Reykjavík 9. maí 1973. For.: Kristján Ágúst Ögmundsson (f. 28. ágúst 1943) forstöðumaður og k. h. Elín Þórjónsdóttir (f. 17. júlí 1946) sjúkraliði. K. Birna Bragadóttir (f. 29. okt. 1974) BA í félagsfræði og háskólanemi. Sonur: Kári (2010). Börn Birnu: Sindri (1995), Salka (2003).
Stúdentspróf VÍ 1993. Lögfræðinám við Kaþólska háskólann í Leuven í Belgíu 1997. Lögfræðipróf HÍ 1998. Hdl. 1999.
Starfaði á lögmannsstofu Jóns Steinars Gunnlaugssonar hrl. meðfram laganámi. Fulltrúi á Lex lögmannsstofu 1998-1999, hdl. þar 1999-2003. Stundakennari við Iðnskólann í Reykjavík 2001-2002.
Forseti Nemendafélags Verzlunarskóla Íslands 1992-1993. Formaður Orators, félags laganema, 1995-1996. Framkvæmdastjóri lögfræðiaðstoðar Orators 1997-1998. Fulltrúi stúdenta í háskólaráði fyrir Vöku, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, 1995-1997. Í stjórn Heimdallar 1995-1997. Í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna 1997-1999, formaður 1999-2001. Í miðstjórn og framkvæmdastjórn Sjálfstæðisflokksins 1999-2001. Í stjórn Heimssýnar, hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum, síðan 2002. Í nefnd iðnaðarráðherra um endurskoðun vatnalaga 2008. Í starfshópi menntamálaráðherra um eflingu Hólaskóla, Háskólans á Hólum, 2008. Í starfshópi menntamálaráðherra um starfsumhverfi fjölmiðla síðan 2008.
Alþm. Reykv. n. 2003-2009, vþm. apríl-sept og okt. 2010-sept. 2011 (Sjálfstfl.).
Menntamálanefnd 2003-2009 (form. 2005-2009), allsherjarnefnd 2003-2009, iðnaðarnefnd 2003-2007, sérnefnd um stjórnarskrármál 2004-2007 og 2009 (fyrri).
Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2003-2005, Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál 2005-2009 (form.).
Ritstjóri: Í ritstjórn Úlfljóts (1996-1997).
Síðast breytt 14.09.2011. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur