Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Ásmundur Einar Daðason
3. þm. NV, F, ÁsmD
Ásmundur Einar Daðason

   
Árni Þór Sigurðsson

Árni Þór Sigurðsson

      F. í Reykjavík 30. júlí 1960. For.: Sigurður Kristófer Árnason (f. 7. febr. 1925, d. 18. nóv. 2007) skipstjóri og Þorbjörg J. Friðriksdóttir (f. 25. okt. 1933, d. 12. apríl 1983) hjúkrunarkennari og framkvæmdastjóri öldrunarlækninga á Landspítala. M. Sigurbjörg Þorsteinsdóttir (f. 24. sept. 1955) ónæmisfræðingur við Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum. For.: Þorsteinn Þórðarson og Soffía G. Jónsdóttir. Börn: Sigurður Kári (1986), Arnbjörg Soffía (1990), Ragnar Auðun (1994).
      Stúdentspróf MH 1979. Cand.mag.-próf í hagfræði og rússnesku frá Óslóarháskóla 1986. Framhaldsnám í slavneskum málvísindum við Stokkhólmsháskóla og Moskvuháskóla 1986-1988. Nám í opinberri stjórnsýslu við EHÍ 2000-2001.
      Fréttaritari RÚV í Moskvu 1988. Fréttamaður hjá RÚV 1988-1989. Deildarstjóri í samgönguráðuneytinu 1989-1991. Ritstjóri og ritstjórnarfulltrúi á Þjóðviljanum og síðar Helgarblaðinu 1991-1992. Félags- og launamálafulltrúi Kennarasambands Íslands 1992-1998. Aðstoðarmaður borgarstjóra 1998-1999. Framkvæmdastjóri þingflokks Alþýðubandalagsins og óháðra 1998. Verkefnisstjóri verkefnisins EES og íslensk sveitarfélög í Brussel 2005. Borgarfulltrúi í Reykjavík 1994-2007. Forseti borgarstjórnar 2002-2005. Formaður stjórnar Dagvistar barna 1994-1998. Varaformaður fræðsluráðs 1994-1996. Formaður stjórnar SVR 1996-1998. Formaður hafnarstjórnar 1994-2006. Formaður skipulags- og byggingarnefndar 1999-2002. Formaður samgöngunefndar 2002-2005. Formaður umhverfisráðs 2005-2006. Í stjórn Hafnasambands sveitarfélaga 1994-2004, formaður 1997-2004. Í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2002-2007, varaformaður 2006-2007.
      Varaformaður Ferðamálaráðs Íslands 1989-1993. Formaður stjórnar Lánasjóðs íslenskra námsmanna 1990-1991. Varaformaður framkvæmdastjórnar Alþýðubandalagsins 1991-1995. Í stjórn SPRON 1998-2004. Í samvinnunefnd um svæðisskipulag miðhálendisins 1999-2002. Í samgöngunefnd Samtaka Evrópuborga, Eurocities, 2002-2006, varaforseti 2004-2006. Fulltrúi á sveitarstjórnarþingi Evrópuráðsins í Strassborg 2003-2008, í umhverfisnefnd 2003-2007 og í stjórnarnefnd 2007-2008. Í flokksstjórn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs 2005-2009. Í stjórn Alþjóðasambands hafnaborga 2006-2008. Í stjórn Heimssýnar, hreyfingar sjálfsstæðissinna í Evrópumálum, 2007-2009.

      Alþm. Reykv. n. síðan 2007 (Vg.).
      5. varaforseti Alþingis 2009-2010 og 2012-2013.
      Starfandi formaður þingflokks Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs 2010-2011. Formaður þingflokks Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs 2011.
      Samgöngunefnd 2007-2009 og 2011, umhverfisnefnd 2007-2009, allsherjarnefnd 2009 og 2010, efnahags- og skattanefnd 2009 og 2011, utanríkismálanefnd 2009-2013 (form. 2009-2013), kjörbréfanefnd 2009-2011, fjárlaganefnd 2009, 2011-2012, menntamálanefnd 2009, félags- og tryggingamálanefnd 2009-2010, viðskiptanefnd 2009-2010, sérnefnd um stjórnarskrármál 2010-2011, þingskapanefnd 2011-2013, velferðarnefnd 2012-2013, efnahags- og viðskiptanefnd 2013.
      Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 2007-2011 (form. 2009-2011), Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2011-2013, Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES 2011-2013 (form.).


Síðast breytt 15.05.2013. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur


Blogg

Símanúmer
Á lögheimili: 562-5460
Farsími: 693-9310

Þingstörf
8. þm. RN , Vinstri-gr., ÁÞS


Hagsmunaskráning

Curriculum Vitae in English




Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.