Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Guðlaugur Þór Þórðarson
7. þm. RS, S, GÞÞ
Guðlaugur Þór Þórðarson

   
Guðbjartur Hannesson

Guðbjartur Hannesson

      F. á Akranesi 3. júní 1950. For.: Hannes Þjóðbjörnsson (f. 20. jan. 1905, d. 2. okt. 1984) verkamaður og Ólafía Rannveig Jóhannesdóttir (f. 30. maí 1910, d. 30. jan. 2007). M. Sigrún Ásmundsdóttir (f. 17. des. 1951) yfiriðjuþjálfi. For.: Ásmundur Jónatan Ásmundsson og Hanna Helgadóttir. Dætur: Birna (1978), Hanna María (1988).
      Kennarapróf KÍ 1971. Tómstundakennarapróf frá Seminariet for Fritidspædagoger, Vanløse, Danmörku 1978. Framhaldsnám í skólastjórn KHÍ 1992-1995. Meistarapróf frá kennaraskóla Lundúnaháskóla (Institute of Education, University of London) 2005.
      Vann á sumrum samhliða námi í Búrfellsvirkjun og Sementsverksmiðju Akraness. Kennari við Grunnskóla Akraness 1971-1973. Erindreki Bandalags íslenskra skáta 1973-1975. Kennari við Peder Lykke Skolen á Amager í Kaupmannahöfn 1978-1979. Kennari við Grunnskóla Akraness 1979-1981. Skólastjóri Grundaskóla Akranesi 1981-2007. Í bæjarstjórn Akraness 1986-1998. Í bæjarráði 1986-1998, formaður þess 1986-1989 og 1995-1997. Forseti bæjarstjórnar 1988-1989, 1994-1995 og 1997-1998. Félags- og tryggingamálaráðherra og heilbrigðisráðherra síðan 2. sept. 2010. Velferðarráðherra síðan 1. jan. 2011.
      Í ýmsum framkvæmdanefndum um byggingu Grundaskóla og leikskólans Garðasels 1981-2001. Í æskulýðsnefnd Akranesbæjar 1982-1986. Fulltrúi skólastjóra í skólanefnd Akranesbæjar 1981-2007. Fulltrúi á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi 1986-1994. Í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 1986-1998. Í stjórn Rafveitu Akraness 1986-1990 og 1994-1995 og í stjórn Akranesveitu 1995-1998. Í stjórn Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar 1994-1998, formaður 1995-1998. Í samstarfsnefnd um svæðisskipulag sunnan Skarðsheiðar 1990-1996. Í starfshópi um vinnu við mótun markmiða og stefnu í málefnum leikskóla á Akranesi 1992-1994, í samstarfsnefnd um mótun tillagna um uppbyggingu og rekstur íþróttamannvirkja á Akranesi 1993-1994. Í stjórn útgerðarfélagsins Krossvíkur hf. 1994-1996. Í stjórn Sjúkrahúss og Heilsugæslustöðvar Akraness 1996-1998. Fulltrúi sveitarfélaga í SAMSTARF, samstarfsnefnd um framhaldsskóla, 1996-2001. Formaður Akraneslistans 1998–2000. Formaður skipulagsnefndar Akranesbæjar 1998-2002. Í bankaráði Landsbanka Íslands 1998-2003 og bankaráði Heritable-bankans í London (eign Landsbankans síðan 2000) 2002-2003.

      Alþm. Norðvest. síðan 2007 (Samf.).
      Félags- og tryggingamálaráðherra og heilbrigðisráðherra 2010, velferðarráðherra síðan 2011.
      Forseti Alþingis 2009.
      Félags- og tryggingamálanefnd 2007-2009 (form.), 2009-2010, fjárlaganefnd 2007-2009, 2009-2010 (form.), menntamálanefnd 2007-2009.
      Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2007-2009, Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins 2009-2013.


Síðast breytt 15.05.2013. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur



Símanúmer
Á lögheimili: 431-2723
Farsími: 899-7327

Þingstörf
5. þm. NV , Samf., GuðbH

Embætti:
Velferðarráðherra

Velferðarráðuneyti

Hagsmunaskráning

Curriculum Vitae in English




Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.