F. á Dalvík 15. júlí 1957. For.: Júlíus Kristjánsson (f. 16. sept. 1930) forstjóri og Ragnheiður Sigvaldadóttir (f. 5. maí 1934) skjalavörður. M. Guðbjörg Baldvinsdóttir Ringsted (f. 12. jan. 1957) myndlistarmaður. For.: Baldvin Gunnar Sigurðsson Ringsted og Ágústa Sigurðardóttir Ringsted. Börn: María (1984), Júlíus (1986), Gunnar (1990), Þorsteinn (1997).
Stúdentspróf MA 1977. Skipstjórnarpróf (1. og 2. stig) frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1978. Nám í íslensku og almennum bókmenntum HÍ 1981-1984. Kennsluréttindapróf HÍ 1984.
Stýrimaður og skipstjóri á skipum frá Dalvík 1978-1981 og á sumrin 1981-1985. Kennari við Stýrimannaskólann á Dalvík 1981-1986. Kennari við Dalvíkurskóla 1984-1986. Bæjarstjóri Dalvíkur 1986-1994. Í stjórn Útgerðarfélags Dalvíkinga hf. 1987-1990. Formaður stjórnar Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar hf. 1987-1992. Í stjórn Söltunarfélags Dalvíkur hf. 1987-1993. Í stjórn Sæplasts hf. 1988-1994. Bæjarstjóri Ísafjarðar 1994-1997. Í stjórn Togaraútgerðar Ísafjarðar hf. 1996-1997. Formaður stjórnar Samherja hf. 1996-1998. Bæjarstjóri Akureyrar 1998-2006. Formaður stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar 1998-2007. Í stjórn Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands síðan 1999. Í stjórn Landsvirkjunar 1999-2007. Í stjórn Fjárfestingabanka atvinnulífsins 1999-2000. Í Ferðamálaráði Íslands 1999-2003. Formaður stjórnar Lífeyrissjóðs Norðurlands 2000-2007. Í stjórn Fasteignamats ríkisins 2000-2007. Í stjórn Íslenskra verðbréfa 2002-2009. Heilbrigðisráðherra síðan 23. maí 2013.
Í ráðgjafanefnd Tölvuþjónustu sveitarfélaga 1988-1990. Í stjórn Fjórðungssambands Norðlendinga 1989-1990. Í Héraðsráði Eyjafjarðar 1990-1994. Formaður stjórnar Hafnasambands sveitarfélaga 1994-1997. Formaður stjórnar Eyþings 1998-2002. Í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 1998-2007. Í bæjarstjórn Akureyrar 1998-2009. Í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins síðan 2002. Formaður sveitarstjórnarráðs Sjálfstæðisflokksins 2002-2009.
Alþm. Norðaust. síðan 2007 (Sjálfstæðisflokkur).
Heilbrigðisráðherra síðan 2013.
Fjárlaganefnd 2007-2013, iðnaðarnefnd 2007-2009, umhverfisnefnd 2009-2011.
Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2007-2009, Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál 2009-2013.
Síðast breytt 23.05.2013. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur