F. í Reykjavík 30. sept. 1967. For.: Árni Þ. Þorgrímsson (f. 6. ágúst 1931) flugumferðarstjóri og Hólmfríður Guðmundsdóttir (f. 22. júní 1928, d. 6. febr. 2003) aðalbókari. M. Guðjón Ingi Guðjónsson (f. 22. júlí 1964) framkvæmdastjóri. For.: Guðjón M. Guðmundsson og Sveinbjörg Laustsen. Synir: Árni Þór (2002), Helgi Matthías (2008). Stjúpdætur, dætur Guðjóns Inga: Gígja Sigríður (1989), Karítas Sveina (1994).
Stúdentspróf Kvennaskólanum í Reykjavík 1987. BA-próf í stjórnmálafræði HÍ 1991. MS-próf í alþjóðasamskiptum frá Georgetown University í Bandaríkjunum.
Starfsmaður Útflutningsráðs Íslands 1995-1998, aðstoðarviðskiptafulltrúi 1995-1996, viðskiptafulltrúi í New York 1996-1997 og verkefnisstjóri í Reykjavík 1997-1998. Aðstoðarmaður fjármálaráðherra 1998-2005. Aðstoðarmaður utanríkisráðherra 2005-2006. Aðstoðarmaður forsætisráðherra 2006-2007. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra síðan 23. maí 2013.
Í nefnd um nýtt fæðingarorlof 1999. Í samninganefnd ríkisins 1999-2005. Varamaður í jafnréttisráði 2000-2005. Varamaður í bankaráði Norræna fjárfestingarbankans 2002-2006. Í viðræðunefnd um varnarmál 2005-2006. Í stjórn Iceland Naturally 2005-2007 og í stjórn Iceland Naturally Europe 2006-2007. Í fjölskyldunefnd ríkisstjórnarinnar 2005-2007. Í Þingvallanefnd síðan 2009.
Alþm. Suðvest. 2007-2009, alþm. Suðurk. síðan 2009 (Sjálfstæðisflokkur).
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra síðan 2013.
Formaður þingflokks sjálfstæðismanna 2010-2012.
Efnahags- og skattanefnd 2007-2009, iðnaðarnefnd 2007-2009, utanríkismálanefnd 2007-2009, 2010 og 2011-2013, viðskiptanefnd 2009-2010, þingskapanefnd 2011-2013.
Íslandsdeild NATO-þingsins 2007-2013 (form. 2007-2009).
Síðast breytt 23.05.2013. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur