F. í Reykjavík 12. des. 1972. For.: Hörður Þ. Rögnvaldsson (f. 7. apríl 1955) verktaki og Svanborg E. Óskarsdóttir (f. 9. apríl 1956) framkvæmdastjóri og kennari. M. Sigurður E. Vilhelmsson (f. 29. maí 1971) framhaldsskólakennari. For.: Vilhelm G. Kristinsson og Ásgerður Ágústsdóttir. Dætur: Hrafnhildur Ósk (2000), Snæfríður Unnur (2006).
Stúdentspróf FB 1992. Fil.kand.-próf í listasögu frá Stokkhólmsháskóla 2000. Framhaldsnám í viðskiptafræði HÍ síðan 2007.
Framkvæmdastjóri Þorsks á þurru landi ehf. 2001-2009. Skrifstofustjóri Hlíðardals ehf. 2003-2004. Viðskiptastjóri Tok hjá Ax hugbúnaðarhúsi hf. 2004-2006. Framkvæmdastjóri Nínukots ehf. 2006-2008. Verkefnastjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands 2008. Félagsmálaráðherra síðan 23. maí 2013.
Í stjórn Þorsks á þurru landi ehf. 2001-2009. Í skólamálaráði Vestmannaeyja 2003-2004. Varamaður í félagsmálaráði Vestmannaeyja 2003-2005. Ritari í stjórn kjördæmissambands framsóknarfélaganna í Suðurkjördæmi 2003-2007. Í stjórn Nýsköpunarstofu Vestmannaeyja 2003-2006. Í stjórn Náttúrustofu Suðurlands 2003-2006. Í stjórn IceCods á Íslandi ehf. síðan 2003. Í miðstjórn Framsóknarflokksins síðan 2003. Í stjórn Visku, fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar, 2004-2006 og 2008-2009. Gjaldkeri Framsóknarfélags Vestmannaeyja 2004-2010. Fulltrúi í foreldraráði Grunnskóla Vestmannaeyja 2007-2008. Ritari í stjórn Landssambands framsóknarkvenna 2007-2009. Ritari Framsóknarflokksins síðan 2009. Í samráðshóp um húsnæðisstefnu 2011. Formaður verðtryggingarnefndar, nefndar sem kanni forsendur verðtryggingar á Íslandi, síðan 2010.
Alþm. Suðurk. 2008-2013, alþm. Suðvest. síðan 2013 (Framsóknarflokkur).
Vþm. Suðurk. febr.-mars 2006 (Framsóknarflokkur).
Félagsmálaráðherra síðan 2013.
Heilbrigðisnefnd 2008-2009, iðnaðarnefnd 2008-2009, umhverfisnefnd 2008-2009, menntamálanefnd 2009-2011, viðskiptanefnd 2009-2011, þingmannanefnd til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis 2009-2010, allsherjar- og menntamálanefnd 2011, velferðarnefnd 2011-2012, efnahags- og viðskiptanefnd 2012-2013.
Lausapenni hjá Vaktinni, Vestmannaeyjum. Hefur skrifað fasta pistla í Bændablaðið og greinar í ýmis blöð.
Síðast breytt 23.05.2013. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur