Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Valgerður Gunnarsdóttir
6. þm. NA, S, ValG
Valgerður Gunnarsdóttir

   
Valgerður Bjarnadóttir

Valgerður Bjarnadóttir

      F. í Reykjavík 13. jan. 1950. For.: Bjarni Benediktsson (f. 30. apríl 1908, d. 10. júlí 1970) alþm. og ráðherra, sonur Benedikts Sveinssonar alþm., bróðir Péturs Benediktssonar alþm., móðurbróðir Halldórs Blöndals alþm. og ráðherra, og Sigríður Björnsdóttir (f. 1. nóv. 1919, d. 10. júlí 1970) húsmóðir. Systir Björns Bjarnasonar alþm. og ráðherra. M. 1. Vilmundur Gylfason (f. 7. ágúst 1948, d. 19. júní 1983) alþm. og ráðherra. For.: Gylfi Þ. Gíslason alþm. og ráðherra og Guðrún Vilmundardóttir. M. 2. Kristófer Már Kristinsson (f. 3. ágúst 1948) íslenskufræðingur og vþm. For.: Guðmundur Kristinn Magnússon og Ágústa Kristófersdóttir. Börn Valgerðar og Vilmundar: Benedikt (f. 1966, d. 1970), óskírður (f./d. 1973), Guðrún (1974), Nanna Sigríður (f. 1975, d. 1976), Baldur Hrafn (1981). Stjúpbörn, börn Kristófers: Daði Már (1971), Ágústa (1973), Gísli Kort (1978), Gunnar Tómas (1984).
      Stúdentspróf MR 1969. Cand.oecon.-próf HÍ 1975. MS-próf í heilsuhagfræði HÍ 2006.
      Starfsmaður hagdeildar Flugleiða 1975-1978. Fulltrúi í sjávarútvegsráðuneytinu 1978-1980. Fulltrúi í hagdeild Flugleiða 1980. Forstöðumaður hagdeildar Flugleiða 1981-1985. Yfirmaður hótelrekstrar Flugleiða 1985-1986. Deildarstjóri efnahagsrannsókna hjá AEA - Association of European Airlines, sem hefur aðsetur í Brussel, 1987-1990. Sjálfstætt starfandi ráðgjafi í Brussel í samstarfi við ráðgjafafyrirtækið Prisma, við verkefni fyrir m.a. Vinnuveitendasamband Íslands og Félag íslenskra iðnrekenda, 1990-1991. Sérfræðingur (fór með samgöngumál) á aðalskrifstofu EFTA í Brussel 1991-1994. Skrifstofustjóri á skrifstofu samgangna, fjarskipta og fjármálastarfsemi (málefni sem farið var með í „samninganefnd II“) á aðalskrifstofu EFTA í Brussel. Tók þátt í samningum um viðbætur við EES-samninginn 1994-2001. Framkvæmdastjóri Sjúkrahúsapóteksins ehf. 2001-2003. Yfirmaður lyfjaþjónustu Landspítala - háskólasjúkrahúss 2003-2005. Sviðsstjóri á innkaupa- og vörustjórnunarsviði Landspítala - háskólasjúkrahúss 2005–2009.
      Varaformaður landsnefndar Bandalags jafnaðarmanna 1984-1985. Í framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar 2003-2005. Í flokksstjórn Samfylkingarinnar frá 2005. Í háskólaráði Háskóla Íslands 2007-2009. Varamaður í stjórn Leikfélags Reykjavíkur frá 2007. Varamaður í bankaráði Seðlabanka Íslands 2007-2008, í bankaráði 2008-2009. Í Þingvallanefnd síðan 2009.

      Alþm. Reykv. n. síðan 2009 (Samfylkingin).
      Vþm. Reykv. n. okt.-nóv. 2007, febr.-mars 2008 (Samfylkingin).
      Allsherjarnefnd 2009-2011, heilbrigðisnefnd 2009-2010, utanríkismálanefnd 2009-2011, sérnefnd um stjórnarskrármál 2010-2011, viðskiptanefnd 2010-2011, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 2011-2013 (form.), velferðarnefnd 2011-2012, fjárlaganefnd 2012-2013.
      Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 2009-2011.


Síðast breytt 23.05.2013. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur


Blogg

Símanúmer
Á dvalarstað: 562-2254
Farsími: 824-5845

Þingstörf
11. þm. RN , Samf., VBj


Hagsmunaskráning

Curriculum Vitae in English




Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.