Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Líneik Anna Sævarsdóttir
5. þm. NA, F, LínS
Líneik Anna Sævarsdóttir

   
Lilja Mósesdóttir

Lilja Mósesdóttir

      F. í Reykjavík 11. nóv. 1961. For.: Móses Guðmundur Geirmundsson (f. 22. mars 1942) yfirverkstjóri og Dóra Haraldsdóttir (f. 11. des. 1943) stöðvarstjóri. M. Ívar Jónsson (f. 27. jan. 1955) forstöðumaður. For.: Jón Gunnar Ívarsson og Guðrún Guðlaug Sigurgeirsdóttir. Sonur: Jón Reginbald (1992).
      Stúdentspróf VÍ 1981. BBA-próf í viðskiptafræði frá University of Iowa 1984. Kennsluréttindanám frá Philipps-Universität, Marburg, 1987. MA-próf í þróunarhagfræði frá University of Sussex, Brighton, 1988. Dr. phil. í hagfræði frá University of Manchester Institute of Science and Technology (UMIST) Management School 1999.
      Kennari við VÍ 1985-1986. Hagfræðingur hjá ASÍ 1988-1989. Lektor við HA 1989-1991. Ráðgjafi og námskeiðakennari hjá Iðntæknistofnun Íslands 1992-1993. Verkefnaráðinn ráðgjafi atvinnu- og félagsmálaráðherra grænlensku heimastjórnarinnar 1995-1997. Verkefnaráðinn sérfræðingur í sérfræðingahópi ESB 1997-1999. Kennari og sérfræðingur við Tækniháskólann í Luleå, Svíþjóð, 1999-2000. Dósent við Háskólann í Reykjavík 2000-2002. Prófessor við Háskólann á Bifröst 2003-2007. Verkefnaráðinn sérfræðingur í sérfræðingahópum ESB 2004-2009. Hagfræðingur hjá HÍ frá 2008.

      Alþm. Reykv. s. 2009-2013 (Vg., Ufl.).
      Efnahags- og skattanefnd 2009-2010 og 2011, félags- og tryggingamálanefnd 2009 (form.), viðskiptanefnd 2009-2011 (form.), menntamálanefnd 2009-2011, iðnaðarnefnd 2010-2011, efnahags- og viðskiptanefnd 2011-2013.
      Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 2009-2011 (form.).


Síðast breytt 29.04.2013. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur


Hagsmunaskráning




Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.