F. í Reykjavík 15. apríl 1965. For.: Helgi Skúlason (f. 4. sept. 1933, d. 30. sept. 1996) leikari og Helga Bachmann (f. 24. júlí 1931, d. 7. jan. 2011) leikkona. M. Anna-Lind Pétursdóttir (f. 29. nóv. 1971) sálfræðingur. For.: Pétur Bjarnason og Gisela-Rabe Stephan. Synir: Teitur Helgi (1996), Bergur Máni (1999), Pétur Glói (2009). Sonur Skúla og Sifjar Einarsdóttur: Darri (1988).
Stúdentspróf MR 1984. BA-próf í stjórnmálafræði HÍ 1994. MPA-próf í opinberri stjórnsýslu frá University of Minnesota 2005.
Dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu 1984-1996. Framkvæmdastjóri Stúdentaráðs HÍ 1992-1993. Dagskrárgerðarmaður hjá Bylgjunni 1996-1998. Dagskrárstjóri Bylgjunnar 1998-1999. Framkvæmdastjóri innlendra viðburða hjá Reykjavík - menningarborg Evrópu 1999-2000. Útgáfustjóri hjá Eddu - miðlun og útgáfu 2001-2003. Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar 2006-2009. Varaformaður stjórnar Þróunarsamvinnustofnunar Íslands 2007-2008. Formaður stjórnar Iceland Naturally 2007-2009.
Varaformaður Stúdentaráðs HÍ 1991-1992. Í stjórn Háskólabíós 1991-1996. Í stjórn Félagsstofnunar stúdenta 1994-1996. Formaður Hollvinasamtaka Minnesota-háskóla á Íslandi frá 2007. Í nefnd um eflingu græna hagkerfisins 2010-2013.
Alþm. Reykv. s. 2009-2013 (Samf.).
Heilbrigðisnefnd 2009-2010, iðnaðarnefnd 2009-2010 (form.), menntamálanefnd 2009-2011 (form. 2010-2011), umhverfisnefnd 2010-2011, viðskiptanefnd 2010-2011, allsherjar- og menntamálanefnd 2011-2013, efnahags- og viðskiptanefnd 2011-2013.
Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES 2011-2013.
Síðast breytt 15.05.2013. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur