F. á Sauðárkróki 9. júní 1968. For.: Sveinn Margeir Friðvinsson (f. 19. sept. 1938) og Ingibjörg Gunnhildur Jósafatsdóttir (f. 13. maí 1940). M. Elva Björk Guðmundsdóttir (f. 1. apríl 1969) húsmóðir. For.: Guðmundur Frímannsson og Sigurlaug Guðmundsdóttir. Synir: Sveinn Rúnar (1993), Ingi Sigþór (2000), Róbert Smári (2000). Stjúpsynir, synir Elvu Bjarkar: Arnar Þór Sigurðsson (1988), Frímann Viktor Sigurðsson (1989).
Stúdentspróf FNV á Sauðárkróki 1989. Nám í atvinnulífsfélagsfræði HÍ.
Verslunarstjóri Ábæjar 1989-1990. Verkamaður og gæslumaður í Steinullarverksmiðjunni 1989-1991. Ritstjóri héraðsfréttablaðsins Einherja 1991-1992. Verslunarstjóri Ábæjar 1991-1995. Sölu- og verslunarstjóri hjá Skeljungi hf. 1996-1997. Aðstoðarmaður félagsmálaráðherra 1997-1999. Markaðsráðgjafi hjá Íslensku auglýsingastofunni 1999. Starfaði á verslunarsviði Kaupfélags Skagfirðinga 2000-2002. Framkvæmdastjóri Ábæjar 2002-2003. Framkvæmdastjóri Ábæjar-veitinga ehf. 2004-2007.
Í stjórn Húsnæðissamvinnufélags Skagafjarðar og í stjórn Brynju, hússjóðs Öryrkjabandalags Íslands, 1998-2000. Formaður stjórnar varasjóðs viðbótarlána 1998-2002, varaformaður frá 2002. Formaður Félags ungra framsóknarmanna í Skagafirði. Varaformaður kjördæmissambands Framsóknarflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra. Varaforseti sveitarstjórnar Skagafjarðar frá 2006. Formaður byggðaráðs Skagafjarðar frá 2006. Varaformaður atvinnu- og ferðamálanefndar Skagafjarðar frá 2006. Formaður Gagnaveitu Skagafjarðar frá 2006. Formaður stjórnar Norðurár bs. sorpsamlags frá 2006. Formaður stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra frá 2006. Í stjórn Hátækniseturs Íslands ses. frá 2007. Í menningarráði Norðurlands vestra frá 2008.
Alþm. Norðvest. síðan 2009 (Framsfl.).
Formaður þingflokks framsóknarmanna síðan 2009.
Iðnaðarnefnd 2009-2011, þingskapanefnd 2011-2013, utanríkismálanefnd 2011-2013.