Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Silja Dögg Gunnarsdóttir
3. þm. SU, F, SilG
Silja Dögg Gunnarsdóttir

   
Sigurður Ingi Jóhannsson

Sigurður Ingi Jóhannsson

      F. á Selfossi 20. apríl 1962. For.: Jóhann H. Pálsson (f. 7. mars 1936, d. 28. nóv. 1987) bóndi í Dalbæ í Hrunamannahreppi og Hróðný Sigurðardóttir (f. 17. maí 1942, d. 28. nóv. 1987) húsmóðir og skrifstofumaður. M. 1. Anna Kr. Ásmundsdóttir (f. 23. sept. 1962) kennari. Þau skildu. For.: Ásmundur Bjarnason og Kristrún Jónía Karlsdóttir. M. 2. Ingibjörg Elsa Ingjaldsdóttir (f. 9. maí 1966) framkvæmdastjóri. For.: Ingjaldur Ásvaldsson og Guðbjörg Elíasdóttir. Börn Sigurðar og Önnu: Nanna Rún (1983), Jóhann Halldór (1990), Bergþór Ingi (1992). Stjúpbörn, börn Ingibjargar Elsu: Sölvi Már Benediktsson (1990), Hildur Guðbjörg Benediktsdóttir (1996).
      Stúdentspróf ML 1982. Embættispróf í dýralækningum frá Konunglega dýralækna- og landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn (KVL). Almennt dýralæknaleyfi í Danmörku 1989 og á Íslandi 1990.
      Landbúnaðarstörf samhliða námi 1970-1984. Afgreiðslu- og verkamannastörf hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík 1982-1983. Bóndi í Dalbæ í Hrunamannahreppi 1987-1994. Sjálfstætt starfandi dýralæknir í uppsveitum Árnessýslu 1990-1995. Settur héraðsdýralæknir í Hreppa- og Laugarásumdæmi 1992-1994 og um skeið í Vestur-Barðastrandarumdæmi. Dýralæknir hjá Dýralæknaþjónustu Suðurlands ehf. 1996-2009. Oddviti Hrunamannahrepps 2002-2009. Sjávar­útvegs- og landbúnaðarráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra síðan 23. maí 2013.
      Í varastjórn Ungmennafélags Hrunamanna (UMFH) og gjaldkeri knattspyrnudeildar 1990-1996. Í sóknarnefnd Hrepphólakirkju 1993-1997. Í sveitarstjórn Hrunamannahrepps frá 1994, varaoddviti 1994-1998, oddviti 2002-2009. Í stjórn Dýralæknafélags Íslands 1994-1996. Formaður stjórnar Dýralæknaþjónustu Suðurlands ehf. frá 1996. Í ráðherraskipaðri nefnd sem vann að breytingum á dýralæknalögum 1996-1998. Formaður stjórnar Hótels Flúða hf. 1996-2002 og 2003-2005, formaður byggingarnefndar hótelsins 1998-2000. Ritari stjórnar Framsóknarfélags Árnessýslu 2001-2008. Í skólanefnd Menntaskólans að Laugarvatni frá 2001, varamaður 1997-2001, formaður stjórnar 2001-2009. Í stjórn Kaupfélags Árnesinga 2002-2003. Í héraðsnefnd Árnesinga frá 2002. Í stjórn Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands 2002-2007, varaformaður 2006-2007. Í heilbrigðisnefnd Suðurlands 2006-2009. Oddviti oddvitanefndar uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps 2006-2009, formaður stjórnar skipulags- og byggingafulltrúaembættis þar 2008-2009. Formaður skipulags- og bygginganefndar uppsveita Árnessýslu 2006-2008. Í samgöngunefnd Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga 2003-2006. Varaformaður stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga 2007-2009. Í Þingvallanefnd síðan 2009. Varaformaður Framsóknarflokksins síðan 2013.

      Alþm. Suðurk. síðan 2009 (Framsóknarflokkur).
      Sjávar­útvegs- og landbúnaðarráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra síðan 2013.
      4. varaforseti Alþingis 2011-2013.
      Sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd 2009-2011, þingmannanefnd til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis 2009-2010, atvinnuveganefnd 2011-2013.
      Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2009-2013.


Síðast breytt 24.05.2013. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur


sigurduringi.is/

Símanúmer
Á dvalarstað: 486-6566
Farsími: 8930111

Þingstörf
1. þm. SU , Framsfl., SIJ

Embætti:
Umhverfis- og auðlindaráðherra

Umhverfis- og auðlindaráðuneyti

Hagsmunaskráning

Curriculum Vitae in English




Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.