F. í Reykjavík 12. mars 1975. For.: Gunnlaugur M. Sigmundsson (f. 30. júní 1948), cand. oecon. og alþm., framkvæmdastjóri og Sigríður G. Sigurbjörnsdóttir (f. 5. okt. 1948) lífeindafræðingur og skrifstofustjóri. M. Anna Sigurlaug Pálsdóttir (f. 9. des. 1974) mannfræðingur. For.: Páll Samúelsson og Elín Sigrún Jóhannesdóttir. Barn: Sigríður Elín (2012).
Stúdentspróf MR 1995. BS-próf frá viðskipta- og hagfræðideild HÍ 2005 auk hlutanáms í fjölmiðlafræði. Skiptinám við Plekhanov-háskóla í Moskvu. Nám við stjórnmálafræðideild Kaupmannahafnarháskóla í alþjóðasamskiptum og opinberri stjórnsýslu. Framhaldsnám í hagfræði og stjórnmálafræði við Oxford-háskóla með áherslu á tengsl hagrænnar þróunar og skipulagsmála.
Þáttastjórnandi og fréttamaður í hlutastarfi hjá Ríkisútvarpinu 2000-2007. Forsætisráðherra síðan 23. maí 2013.
Forseti Nordiska Ekonomie Studerandes Union 2000-2002. Fulltrúi í skipulagsráði Reykjavíkurborgar 2008-2010. Formaður Framsóknarflokksins síðan 2009.
Alþm. Reykv. n. 2009-2013, alþm. Norðaust. síðan 2013 (Framsóknarflokkur).
Forsætisráðherra síðan 2013.
Utanríkismálanefnd 2009-2013.
Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 2009-2011, Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES 2011-2013.
Síðast breytt 23.05.2013. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur