Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Helgi Hjörvar
4. þm. RN, Sf, HHj
Helgi Hjörvar

   
Halldór Ásgrímsson

Halldór Ásgrímsson

      F. á Vopnafirði 8. sept. 1947. For.: Ásgrímur Halldórsson (f. 7. febr. 1925, d. 28. mars 1996) framkvæmdastjóri á Höfn í Hornafirði, sonur Halldórs Ásgrímssonar alþm., og k. h. Guðrún Ingólfsdóttir (f. 15. júní 1920, d. 14. júlí 2004) húsmóðir. K. (16. sept. 1967) Sigurjóna Sigurðardóttir (f. 14. des. 1947) læknaritari. For.: Sigurður Brynjólfsson og k. h. Helga Karlsdóttir Schiöth. Dætur: Helga (1969), Guðrún Lind (1975), Íris Huld (1979).
      Samvinnuskólapróf 1965. Löggiltur endurskoðandi 1970. Framhaldsnám við verslunarháskólana í Björgvin og Kaupmannahöfn 1971-1973.
      Lektor við viðskiptadeild Háskóla Íslands 1973-1975. Skip. 26. maí 1983 sjávarútvegsráðherra, skip. jafnframt 16. okt. 1985 samstarfsráðherra Norðurlanda, lausn 28. apríl 1987, en gegndi störfum til 8. júlí. Skip. 8. júlí 1987 sjávarútvegsráðherra, lausn 17. sept. 1988, en gegndi störfum til 28. sept. Skip. 28. sept. 1988 sjávarútvegs-, dóms- og kirkjumálaráðherra, lausn 10. sept. 1989. Skip. á ný sama dag sjávarútvegsráðherra, lausn 23. apríl 1991, en gegndi störfum til 30. apríl. Skip. 23. apríl 1995 utanríkisráðherra og jafnframt samstarfsráðherra Norðurlanda, lausn 28. maí 1999. Fór jafnframt með landbúnaðarráðuneytið og umhverfisráðuneytið frá 11. til 28. maí 1999. Skip. 28. maí 1999 utanríkisráðherra, lausn 23. maí 2003. Fór jafnframt með heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið frá 23. jan. til 6. febr. og 9. til 26. febr. 2001 í forföllum Ingibjargar Pálmadóttur. Skip. 23. maí 2003 utanríkisráðherra, lausn 15. sept. 2004. Skip. á ný sama dag forsætisráðherra; jafnframt ráðherra Hagstofu Íslands síðan 27. sept. 2005, lausn 15. júní 2006.
      Varaformaður Framsóknarflokksins 1980-1994, formaður hans síðan 1994. Í bankaráði Seðlabanka Íslands 1976-1983, formaður 1980-1983. Formaður hóps miðjuflokkanna í Norðurlandaráði 1993-1995.

      Alþm. Austurl. 1974-1978 og 1979-2003, alþm. Reykv. n. 2003-2006 (Framsfl.).
      Vþm. Austurl. nóv.-des. 1978.
      Sjávarútvegsráðherra 1983-1991 og samstarfsráðherra um norræn málefni 1985-1987, dóms- og kirkjumálaráðherra 1988-1989, samstarfsráðherra Norðurlanda 1995-1999, utanríkisráðherra 1995-2004, forsætisráðherra 2004-2006.
      Sjávarútvegsnefnd 1991-1994, efnahags- og viðskiptanefnd 1991-1994 (form. 1993-1994), utanríkismálanefnd 1994-1995, sérnefnd um stjórnarskrármál 1994-1995.
      Íslandsdeild Norðurlandaráðs 1977-1978 1980-1983 og 1991-1995 (form. 1982-1983 og 1993-1995), Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins 1976.


Síðast breytt 06.09.2006. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur

Þingsetutímabil og embætti á Alþingi og í ríkisstjórnum.
Nefndasetur.
 
Þingstörf
Raddsýnishorn
Raddsýnishorn (http)





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875


Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.