Samantekt um þingmál

Tekjuaðgerðir fjárlagafrumvarps 2014

2. mál á 143. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að breyta nokkrum lögum er varða tekjur og gjöld ríkissjóðs.

Helstu breytingar og nýjungar

Miðþrep í tekjuskatti einstaklinga lækkar úr 25,8% í 25%. Frítekjumark vegna vaxtatekna er hækkað úr 100.000 kr. í 125.000 kr. Virðisaukaskattur af einnota barnableium lækkar úr 25,5% í 7%. Atvinnutryggingagjald, almennt tryggingagjald og gjald í Ábyrgðasjóð launa, sem hlutfall af launakostnaði, lækka samanlagt um 0,1 prósentustig. Fjársýsluskattur lækkar úr 6,75% í 4,5% og sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki, þ.á m. fjármálafyrirtæki í slitameðferð, hækkar úr 0,041% í 0,145%.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á sex lögum er varða tekjur og gjöld ríkissjóðs.

Kostnaður og tekjur

Hækkar tekjur ríkissjóðs um 7 milljarða árið 2014. Ekki liggur fyrir kostnaðarmat vegna þeirra breytinga sem gerðar voru á frumvarpinu.

Umsagnir (helstu atriði)

Fjölmargar athugasemdir eru gerðar við frumvarpið en efnislegar athugasemdir snúast einkum um heimild til skattlagningar fjármálafyrirtækja í slitameðferð, sjá t.d. umsögn Lögmannafélags Íslands.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum, t.d. var sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki hækkaður í 0,376%, en þær höfðu ekki áhrif á meginatriði frumvarpsins.


Síðast breytt 20.12.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.