Hægt er að
sækja Word Perfect útgáfu af skjalinu, sjá upplýsingar um
uppsetningu á
Netscape fyrir Word Perfect skjöl.
Þingsályktun
um jarðgangaáætlun fyrir árin 20002004.
Alþingi ályktar að á árunum 20002004 skuli varið 4.650 millj. kr. til að grafa jarðgöng
sem hluta af vegakerfi landsins. Fyrstu verkefnin sem framkvæma skal eru jarðgöng milli
Siglufjarðar og Ólafsfjarðar annars vegar og milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar hins vegar. Jafnframt verði hafinn undirbúningur að næstu verkefnum. Sérstaklega verði rannsökuð
göng milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar á Vestfjörðum og á Austfjörðum ný göng milli Eskifjarðar og Norðfjarðar og göng milli Héraðs og Vopnafjarðar.
Fjárveitingar skiptast á verkefni og ár sem hér segir (millj. kr.):
2000
2001
2002
2003
2004
SiglufjörðurÓlafsfjörður og ReyðarfjörðurFáskrúðsfjörður
100
200
1.400
1.400
1.400
Rannsóknir til undirbúnings jarðganga á Vestfjörðum og Austfjörðum
50
50
50
Samtals
100
200
1.450
1.450
1.450
Kostnaður við jarðgangagerðina greiðist úr ríkissjóði. Verði fjár aflað sérstaklega í þessu
skyni, m.a. með sölu ríkiseigna.
Jarðgangaáætlun skal felld að vegáætlun og endurskoðuð jafnhliða henni, á tveggja ára
fresti. Við endurskoðun bætast við tvö ár hverju sinni.