Ég býð ykkur velkomin á heimasíðu mína.
Hér geymi ég safn blaðagreina, sem flestar fjalla um fiskveiðistjórnun, og geri grein fyrir helstu áherslumálum mínum. Þá er hér unnt að fá greinargóðar upplýsingar um þingstörf mín ásamt æviágripi. Með því að velja merki Frjálslynda flokksins er hægt að fara beint inn á heimasíðu Frjálslynda flokksins og fræðast um starfsemi hans og stefnu.
Þá vil ég hvetja þá sem heimsækja heimasíðu mína til að senda mér tölvupóst ef þeir vilja beina til mín spurningum eða athugasemdum.
Kær kveðja,
Guðjón Arnar.
Helstu áherslumál
Eins og að líkum lætur, eftir aldafjórðungs starf mitt í þágu sjómanna, byggjast mín helstu stefnumál á því að vilja halda landinu í byggð eins og frekast er kostur. Þar af leiðir að atvinnuvegir sem skipta sköpum um að búseta fólks verði áfram sem víðast á landi hér eru mér hugstæðir. Byggðamálin, sem í mínum huga byggja á þeirri undirstöðu að fólkið eigi sjósóknar- og veiðiréttinn sem ekki verði frá því seldur svo og búsetu- og landbúnaðarrétt sem tryggi bændum afkomu. Landsbyggðin þarf betri vegi og samgöngur. Búseta fólks í dreifðum byggðum gerir landið eftirsóknarvert og verðmætt til framtíðar.