Forsíða
Pistlar
Greinar
Um Jóhönnu
Á Alþingi
Senda póst
Jóhanna Sigurðardóttir
 

Skráning á póstlista
Pistlar
Greinar
Netfang:






 
1. júlí 1998

Þjóðin kallar á bætt siðferði

Eitt alvarlegasta mál sem komið hefur upp í stjórnsýslunni á síðari árum og áratugum er gengdarlaust sóun og spilling hjá Landsbankanum í allskonar lúxus og fríðindi.Persónulegir hagsmunir og græðgi virðast iðulega hafa ráðið ferðinni. Þessi alvarlega meinsemd rotinna stjórnarhátta og siðspillingar, sem íslenska þjóðin hélt að helst væri að finna í austur- og suður Evrópu eða Suður Ameríku, virðist einnig í einhverju mæli hafa grafið um sig hér á landi.
Á hinum Norðurlöndunum og víða í þeim ríkjum Evrópu sem við helst berum okkur saman við eru svona mál yfirleitt tekin föstum tökum,og valdhafar látnir sæta ábyrgð gjörða sinna. Á það reynir nú á Íslandi.
Alvarlegt áfall
En þó svo að þeir verði látnir axla ábyrgð, sem ábyrgðina bera í þessu máli, þá er ekki hægt að láta þar staðar numið. Ef endurreisa á trúnað milli fólksins og stjórnsýslunnar, og koma í veg fyrir algjöran trúnaðarbrest í framtíðinni milli löggjafarþings og framkvæmdavalds, þarf fleira að koma til.
Ljóst er að löggjafarþingið hefur orðið fyrir miklu áfalli í samskiptum sínum við framkvæmdavaldið. Sú staða verður ekki liðin að löggjafarsamkoma þjóðarinnar sé lítilsvirt með rangri upplýsingagjöf. Hér eftir mun algjör tortryggni ríkja um svör ráðherra til þingsins, nema hart verði við brugðist. Nú reynir ekki síst á forsætisnefnd þingsins og hvernig hún og þingheimur allur mun bregðast við til að styrkja stöðu þingsins gagnvart framkvæmdavaldinu.
Setja þarf nýjar leikreglur
Eftirfarandi þarf að skoða sérstaklega;

  1. Ljóst virðist að heilbrigð dómgreind og siðgæðisvitund gagnvart óskráðum siðareglum dugar ekki. Siðferðismat virðist vera í molum og leikreglur þarf því að setja. Kanna þarf því þær skráðu og óskráðu reglur sem ríkja um embættisfærslur í opinberri stjórnsýslu. Markmiðið er að leggja mat á hvort rétt sé að setja siðareglur í opinberum rekstri, sérstaklega að því er varðar meðferð opinberra fjármuna og ýmiskonar hlunninda og tengdra kostnaðargreiðslna í stjórnsýslunni.
  2. Fara þarf ofaní alla löggjöf og opnar heimildir Alþingis til framkvæmdavaldsins. Þannig verði varpað ljósi á það hvort of rúmar eða óskýrar heimildir Alþingis til framkvæmdavaldsins geti verið orsök sóunar eða of lítils aðhalds í meðferð opinberra fjármuna eða skilvirks eftirlits af hálfu löggjafarvaldsins með framkvæmdavaldinu. Í lögum þarf líka að skýra betur og skilgreina hver ber ábyrgð og hvernig með skuli farið ef eitthvað fer úrskeiðis.
  3. Lög um ráðherraábyrgð þarf að endurskoða og að ráðherra sem gefur Alþingi rangar eða villandi upplýsingar skuli sæta ábyrgð, eins og gerist í löndunum í kringum okkur, en að hann geti ekki áfram borið ábyrgðina á undirmenn sína eða aðra. Ætla má að ráðherra vandi þá betur undirbúning á svörum sínum til Alþingis og verði gagnrýnni á hverjum verði falið af þeirra hálfu að afla upplýsinga sem beðið er um af hálfu þingsins.
  4. Starfsaðstaða og verksvið Ríkisendurskoðunar verði með þeim hætti, að hægt sé að fela Ríkisendurskoðun en ekki ráðherra að svara fyrirspurnum þar sem hætta getur verið á hagsmunaárekstrum, ef ráðherra eða undirstofnanir hans eru vanhæfar til að svara fyrirspurnum frá Alþingi.
  5. Lögum verði breytt á þann veg að allar ríkisstofnanir eða fyrirtæki sem ríkið á að hluta eða öllu leyti verði gert skylt að sundurliða og skýra í ársreikningum sínum, allan risnu, ferða- og bílakostnað og hverskonar hlunnindagreiðslur og tilefni þeirra.
  6. Nefndum þingsins verði falið rannsóknarvald, þannig að hvenær sem er líka þegar þing starfar ekki getið nefndirnar tekið fyrir mál, sem m.a. snerta viðlíka mál og nú hefur komið upp og viðkoma m.a. meðferð á opinberum fjármunum og sóun og misnotkun á fé skattborgaranna.

Bregðast þarf við um allt samfélagið
Þessu máli er langt frá því að vera lokið. Virðing Alþingis er í húfi að á þessu máli sé tekið. Þjóðin krefst þess að þeir sem hún kallar til forystu og þeim sem fengið er vald til ákvarðanatöku og ráðstöfunar á skattfé almenning séu ábyrgir gjörða sinna. Fólkið gerir kröfu um að leikreglur samfélagsins séu með þeim hætti að valdhafar búi þeim samfélag þar sem siðgæði ríkir en ekki siðspilling. Við því þarf nú að bregðast um allt samfélagið.

Mbl



 
 
  Forsíða | Pistlar | Greinar | Um Jóhönnu | Á Alþingi | Senda póst