20. mars 1999
Samfylkingin trúverðugri en Sjálfstæðisflokkurinn
Í öllum þessum meginmálaflokkum, er Samfylkingin með jákvæð svör.
Í SETNINGARRÆÐU sinni við upphaf landsfundar Sjálfstæðisflokksins reyndi formaður flokksins að gefa flokknum nýja ímynd; að flokkurinn væri jafnréttissinnaður og vildi auka hlut kvenna, að flokkurinn vildi breyta sjávarútvegsstefnunni, að flokkurinn hefði sérstaklega vel hugsað um hag lífeyrisþega.
Allt þetta sprakk eins og blaðra á landsfundinum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur farið með æðstu völd í landinu í 8 ár og getur ekki skotið sér undan ábyrgð á stefnu sinni.
Konur í baksætinu
Konum í framvarðasveit flokksins var enn eina ferðina skellt í aftursætið og klykkt út með því að víst hugsi flokkurinn um hlut kvenna og væri í raun stærsta kvenfélag landsins. Orð og gjörðir fóru þó ekki saman þegar upp var staðið. Ein brýnasta aðgerð til að ná fram jafnrétti kynjanna, þ.e. tillaga um sjálfstæðan rétt mæðra og feðra til fæðingarorlofs, var felld úr ályktun um jafnréttismál.
Öryrkjar áminntu Sjálfstæðisflokkinn
Táknræn var líka staða öryrkja fyrir utan skrautsýninguna í Laugardalshöll. Flokkurinn sem gumar af góðum þjóðarhag var áminntur um það að hafa gleymt öryrkjum í góðærinu.
Afar sjaldan höfum við heyrt forsætisráðherra ræða kjör lífeyrisþega á kjörtímabilinu. Hann fór frjálslega með sannleikann bæði í skýrslu sinni til Alþingis og á landsfundinum. Það er ekki sæmandi hvernig formaður stærsta stjórnmálaflokksins afsakaði bág kjör öryrkja með tilvísun til þess að kjör þeirra hafi verið verri einhvern tíma áður eða á tímabili efnahagslægðar 19911994. Þá voru kjör almennings og lífeyrisþega verri en í góðærinu á þessu kjörtímabili. Þó var sá mikli munur á þá og nú að í efnahagslægðinni var kjörum lífeyrisþega hlíft með þeim hætti að lífeyrir hélst í hendur við lágmarkslaun og kaupmáttur þeirra var ekki lakari en almennt á þeim tíma. (Sjá skýringarmynd.)
Núverandi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks klippti hinsvegar á tengsl bóta og lægstu launa með þeim afleiðingum að síðustu 5 ár hafa lágmarkslaun hækkað um 52%, launavísitalan um 30%, en örorkulífeyrir og tekjutrygging hefur einungis hækkað um rúm 17%. Þess vegna hafa öryrkjar mótmælt, þess vegna hafa aldraðir mótmælt, þess vegna hafa þjóðkirkjan, fyrrv. landlæknir og stéttarsamtök mótmælt og þess vegna mótmælir þjóðin öll.
Óábyrg kosningaloforð Sjálfstæðisflokksins
Það er í stíl við stefnu Sjálfstæðisflokksins og þvert á fagurgala gagnvart bágstöddum lífeyrisþegum, að landsfundur flokksins samþykkti tillögu um að afnema tekjutengingu lífeyrisgreiðslna almannatrygginga eingöngu til þeirra sem hafa náð 67 ára aldri.
Þessi tillaga gagnast ekkert þeim sem verst eru settir, hvorki öyrkjum eða þeim ellilífeyrisþegum sem þurfa að hafa framfæri sitt af strípuðum bótum almannatrygginga. Þeir fengju ekki krónu til viðbótar. Þetta er því óábyrg, óraunsæ og yfirstéttarleg samþykkt.
Nú hefur Sjálfstæðisflokkurinn gagnrýnt okkur fyrir óábyrg kosningaloforð. Kostnaðurinn af þessari tillögu þeirra er áætlaður 78 milljarðar árlega, samkvæmt Mbl., en 1213 milljarðar króna samkvæmt Degi. Hvort heldur sem er, er hér auðvitað um óábyrgt kosningaloforð að ræða. Í fyrsta lagi vegna þess að ekki er tekið tillit til þeirra sem lakar eru settir, í öðru lagi vegna þess að hvergi er gert ráð fyrir tekjum til að mæta þessum útgjöldum.
Loðin loforð og neikvæð fyrir flokkinn
Í sjávarútvegsmálum var samþykkt tillaga eftir línu formannsins, sem Morgunblaðið af endalausri þolinmæði og velvilja gagnvart Sjálfstæðisflokknum hefur sagt að marki tímamót. Því miður veður Morgunblaðið reyk í því efni, því í ályktuninni eru engin tímamót. Enda túlka sjávarútvegsráðherra og lénsherrar allir af landsbyggðinni þessa ályktun sem yfirlýsingu um óbreytt ástand. Þetta er loðin ályktun og erfitt að útskýra hana, sagði Pétur Blöndal sem stundum leikur litla drenginn í ævintýrinu um nýju fötin keisarans. Þetta er neikvætt fyrir flokkinn sagði Haraldur Sumarliðason formaður Samtaka iðnaðarins.
Samfylkingin með jákvæðar lausnir
Það er umhugsunarefni að í öllum þessum meginmálaflokkum, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn reynir að skjóta sér undan að svara kjósendum, svarar út í hött eða með neikvæðum hætti, þá er Samfylkingin með jákvæð svör.
Samfylkingin mun gera jafnréttismálin og málefni fjölskyldunnar að þungamiðju í sinni verkáætlun á kjörtímabilinu m.a. með lengingu fæðingarorlofs og auknum sjálfstæðum rétti feðra. Sjálfgefið er að hlutur kvenna mun aukast í valdastofnunum þjóðfélagsins fái Samfylkingin gott brautargengi í kosningunum. Í því sambandi er rétt að minna á að konur eru í efsta sæti þriggja framboðslista Samfylkingar, m.a. í fjölmennustu kjördæmunum.
Í lífeyrismálunum höfum við allt kjörtímabilið haldið uppi málafylgju með öryrkjum og öldruðum og komið fram með fjölmargar tillögur til úrbóta á kjörum þeirra. Við munum halda því áfram þar til þau mál eru í höfn.
Í sjávarútvegsmálum leggjum við fram tillögur um jafnræði til sóknar í auðlindina, auðlindagjald fyrir afnot af henni og byggðastuðning. Hvarvetna vill Samfylkingin stuðla að meira réttlæti betra þjóðfélagi.
Jóhanna Sigurðardóttir, alþingism. (Mbl. mars, 1999)