11. nóvember 2006
Valdið hjá fólkinu
Í DAG er valdið hjá fólkinu því nú fer fram prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík. Við höfum á að skipa öflugri sveit frambjóðenda og mikilvægt er að félagar og stuðningsmenn Samfylkingarinnar nýti rétt sinn til að velja sterkt lið fyrir alþingiskosningarnar í vor.
Á hjólum um alla borg
Á undanförnum dögum hef ég verið með "skrifstofu" á hjólum um alla borg til að hitta kjósendur vegna prófkjörsins. Þetta er góð leið til að nálgast kjósendur. Ekkert er betra fyrir stjórnmálamenn en tengsl við fólkið í landinu og að heyra hvað það hefur fram að færa. Það fer ekki á milli mála að fjöldi þeirra sem ég hef hitt vill breytingu á landsstjórninni. Fólki misbýður hvað ójöfnuður og misskipting hefur farið vaxandi á undanförnum árum.
Stuðningsmenn geta líka kosið
Frá stofnun Samfylkingarinnar hef ég notið þess heiðurs og trausts að vera kjörin til að leiða lista hennar í Reykjavík. Fyrir það er ég mjög þakklát.
Á yfirstandandi kjörtímabili leiddi ég listann í Reykjavíkurkjördæmi suður, þar sem ég hlaut 2. sætið í prófkjörinu 2003. Að þessu sinni býð ég mig fram í 2.-3. sætið og leita því eftir umboði til að vera áfram í forystusveit flokksins - en brýnt er að konum verði falin forysta á listum Samfylkingarinnar, engu síður en körlum.
Þátttaka þín skiptir máli
Með þátttöku þinni getur þú gert prófkjörið í dag upphafið að sigurgöngu jafnaðarmanna í komandi alþingiskosningum. Ég vona að löng barátta mín og margra ára reynsla á löggjafarþinginu haldi áfram að nýtast vel á Alþingi - og að með samstilltu átaki takist okkur að færa gildi jafnaðarstefnunnar til öndvegis í íslensku þjóðfélagi.
Höfundur er alþingismaður.
Morgunblaðið, 11. nóvember 2006