Forsíða
Pistlar
Greinar
Um Jóhönnu
Á Alþingi
Senda póst
Jóhanna Sigurðardóttir
 

Skráning á póstlista
Pistlar
Greinar
Netfang:






 
18. nóvember 2006

Áfangasigur

RÍKISSTJÓRNIN sýndi ótrúlega skammsýni og skilningsleysi með því að leggja til að frítekjumark, sem ekki skerði greiðslur almannatrygginga, ætti fyrst að taka gildi árið 2010. Nú hefur barátta samtaka lífeyrisþega og stjórnarandstöðunnar á undanförnum misserum hins vegar orðið til þess að ríkisstjórnin hefur ákveðið að 300 þús. kr. frítekjumark gagnvart atvinnutekjum taki gildi um næstu áramót. Ekki er vafi að alþingiskosningarnar næsta vor höfðu einnig afgerandi áhrif.
Það frítekjumark, sem ríkisstjórnin leggur til, er þó alltof lágt - einungis 25 þús. kr. á mánuði eða 300 þús. kr. á ári. Í tillögu stjórnarandstöðunnar, sem liggur fyrir Alþingi, er miðað við að frítekjumarkið verði 75 þús. kr. á mánuði eða 900 þús. kr. á ári, þ.e.a.s. þrefalt hærra en stjórnarflokkarnir leggja til. Afar mikilvægt er að hafa frítekjumarkið hærra til að auka möguleika lífeyrisþega á því að vera á vinnumarkaðnum, t.d. hluta úr degi, án þess að tekjur þeirra skerði lífeyri almannatrygginga. Í dag er skerðingin svo mikil að ef lífeyrisþegi aflar sér 10 þús. kr. atvinnutekna er algengt að hann haldi einungis eftir um 1500 kr., en 8.500 kr. fari í skattgreiðslur og skerðingar á greiðslum almannatrygginga. Þetta er auðvitað fáránlegt.

Þótt fagna beri áfangasigri í baráttunni fyrir bættum kjörum lífeyrisþega verður ríkisstjórnin að gera betur. Ég skora á hana að fara að tillögum okkar í stjórnarandstöðunni og hækka frítekjumörkin úr 300 þús. kr. í 900 þús. kr. á ári þegar um nk. áramót. Mikilvægt er líka að frítekjumarkið nái einnig til greiðslna úr lífeyrissjóðum. Það sama á auðvitað að gilda um viðbótarlífeyrissparnað sem nú skerðir greiðslur almannatrygginga þegar hann er leystur út.

Áfanga í baráttunni er þó náð og honum ber að fagna.

Höfundur er alþingismaður.


Morgunblaðið, 18. nóvember 2006



 
 
  Forsíða | Pistlar | Greinar | Um Jóhönnu | Á Alþingi | Senda póst