25. nóvember 2006
Loksins, loksins
Í LEYNDINNI þrífst spillingin. Það er því mikið fagnaðarefni þegar nú er brotið blað í stjórnmálasögunni og stjórnmálaflokkarnir koma sér loksins saman um löggjöf um fjármögnun stjórnmálastarfsemi og kosningabaráttu. Ár eftir ár eftir ár, allt frá árinu 1995, hef ég barist fyrir því að löggjöf af þessu tagi yrði sett. Benedikt Gröndal, fyrrv. formaður Alþýðuflokksins, er þó sennilega sá sem fyrstur lagði fram slíkt frumvarp árið 1975 eða fyrir rúmum 30 árum. Það hefur því tekið ótrúlega langan tíma að ná fram þessari mikilvægu löggjöf, sem kemur fjárreiðum stjórnmálaflokkana upp á yfirborðið, en grannþjóðir okkar hafa í langan tíma haft slík lög.
Róðurinn var erfiður en nú ber að fagna
Meginefni frumvarpsins sem ég lagði fram fyrir rúmum 11 árum var um skyldu stjórnmálaflokka til að birta opinberlega samræmda ársreikninga sína og að nafngreina styrktaraðila sem gæfu fjárframlög yfir tiltekin mörk. Ítrekaður endurflutningur og endurbætur á þessu máli á örugglega sinn þátt í að nú er verið að opna fjármál flokkanna sem mikil leynd hefur hvílt yfir og skapað hefur mikla tortryggni. Í greinargerð með því frumvarpi sem nú verður lagt fram er skýrsla um fjármál stjórnmálaflokkanna, sem lögð var fram af fyrrv. forsætisráðherra árið 2005 að minni beiðni, sögð vera aðdragandi þess að málið er nú í höfn. En róðurinn var sannarlega erfiður og segja má að Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið helsti dragbíturinn í þessu máli.
Ísland á leið inn í nútímann
Það gat ekki gengið lengur að Ísland væri eitt af þremur ríkjum í Vestur-Evrópu, ásamt Sviss og Lúxemborg, þar sem ekki hefði verið sett löggjöf um fjármál stjórnmálaflokka. Það var orðið skammarlegt að ítrekað væru hunsuð tilmæli um þetta á alþjóðavettvangi, eins og innan Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Í nefnd stofnunarinnar, sem fjallar um spillingu, hafði Ísland iðulega sætt ákúrum fyrir að setja ekki löggjöf um að opna fjármál stjórnmálaflokka. Það er því mikið fagnaðarefni að Ísland sé nú á leið inn í nútímann með öðrum þjóðum.
Enn eru spillingarsmugur
Vissulega er það þó áhyggjuefni að ekki eigi að vera gegnsæi í fjárframlögum frá einstaklingum og þau birt opinberlega með líkum hætti og hjá lögaðilum. Þetta gæti aukið líkurnar á áframhaldandi neðanjarðarstarfsemi við fjármögnun stjórnmálaflokka í gegnum fjárframlög fjársterkra einstaklinga. Einnig má spyrja hvort eitthvað í þessu frumvarpi komi í veg fyrir að fyrirtæki gætu greitt auglýsingareikninga og fleira fyrir flokka og frambjóðendur, án þess að það kæmi fram í bókhaldi þeirra. Full ástæða er líka til að setja fjáraustri flokkanna í kosningabaráttu þrengri skorður m.a. vegna auglýsinga, auk þess sem heimild frambjóðenda til þess sama er fullrýmileg.
Höfundur er alþingismaður.
Morgunblaðið, 25. nóvember 2006