Forsíða
Pistlar
Greinar
Um Jóhönnu
Á Alþingi
Senda póst
Jóhanna Sigurðardóttir
 

Skráning á póstlista
Pistlar
Greinar
Netfang:


Eldri pistlar
2008
2007
2006
2005
2004
2003
2002
2001
2000
1999
1998




 
1998

30. desember
Við áramót
Í góðærinu á árinu sem senn kveður hefur verið áberandi vaxandi fátækt á Íslandi. Fyrir jólin heyrðum við hvernig öryrkjar þurfa í vaxandi mæli að leita á náðir hjálparstofnana til að eiga fyrir framfærslunni og einstæðum foreldrum fjölgar sem leita þurfa eftir fjárhagsaðstoð hjá sveitarfélögunum. Yfir jólahátíðina kom síðan frétt um mikla húsneyðisneyð fjölda fólks, en 1200-1500 einstaklingar og fjölskyldur bíða nú eftir leiguhúsnæði….
Meira

29. desember
Þjóðaratkvæðagreiðsla styrkir lýðræðið
Á Alþingi hefur pistlahöfundur á fjórum þingum flutt frumvarp um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sem kveður á um rétt kjósenda til að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um lagafrumvörp sem Alþingi hefur samþykkt. Í frumvarpinu er kveðið á um að fimmtungur kosningarbærra manna í landinu geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu, en þessi réttur mun auka lýðræðislegan rétt fólksins og veita stjórnmálaflokkum meira aðhald. …
Meira

22. desember
Þriðji dómurinn á leiðinni?
Sá einstæði atburður gerðist á Alþingi, að tvívegis á sömu vikunni óskaði ríkisstjórnin eftir að Alþingi breytti lögum vegna Hæstaréttardóma. Nú gæti stefnt í á næsta ári að þriðji dómurinn félli ríkisstjórninni í óhag, en Öryrkjabandalagið hefur ákveðið að höfða mál á hendur ríkisvaldinu, vegna skerðingar sem öyrkjar hafa þurfta að sæta á lífeyrisgreiðslum vegna tekna maka. Á síðasta degi Alþingis fyrir jól, ætlaðist ríkisstjórnin samt til að þingmenn keyrðu í gegnum þingið á einum degi frumvarp, sem Öryrkjabandalagið heldur fram að feli í sér brot á lögum, stjórnarskrá og alþjóðasamningum…..
Meira

18. desember
Ráðherra krafinn um skýrslu
Á Alþingi hef ég ásamt 9 öðrum þingmönnum úr stjórnarandstöðu óskað eftir að félagsmálaráðherra flytji Alþingi skýrslu um kjör einstæðra foreldra. Leitað er svara við ýmsum spurningum og spurt er hvort áform séu uppi af hálfu ráðherra eða ríkisstjórnarinnar til að bæta kjör, aðbúnað eða stöðu einstæðra foreldra….
Meira

17. desember
Hvar er jólauppbót atvinnulausra?
Atvinnulausir fá enga jólauppbót þrátt fyrir að nær allir hópar fái uppbót í einhverju formi. Til viðbótar því hefur ríkisstjórnin á árinu 1997 fellt niður sérstaka uppbót á atvinnuleysisbætur sem verið hefur í gildi frá árinu 1990, án þess að atvinnuleysisbætur hafa hækkað samsvarandi. Atvinnuleysisbætur sem á árinu 1996 voru hærri en byrjunartaxti fiskvinnslufólks eru nú 11 þúsund krónum lægri...
Meira

16. desember
Ógn við persónuvernd
Tillögur stjórnarliða um að gjörbreyta meðferð á erfðafræðiupplýsingum, þannig að hægt verði að keyra þær saman við heilsufars- og ættfræðiupplýsingar í gagnagrunninum fela í sér grundvallarbreytingu á málinu og ósvífni af meirihlutanum að kalla þær tæknilegar...
Meira

15. desember
Hundruð fatlaðra á biðlistum
777 fatlaðir einstaklingar eru á biðlista eftir þjónustu s.s búsetuúrræðum, skammtímavistun, liðveislu og dagþjónustu. -Ríkisstjórnin hefur á kjörtímabilinu skorið Framkvæmdasjóð fatlaðra niður um meira en 900 milljónir króna. Stjórnarliðar felldu í gær tillögu stjórnarandstæðinga um að tekjum til sjóðsins yrði skilað til framkvæmda í þágu fatlaðra eins og lög kveða á um, segir m.a. í pistli Jóhönnu…
Meira

14. desember
Aðvörun til ráðherra
Gangi það eftir að nýtt greiðslumat opni fyrir að 30-50% af heildarlaunum geti farið til greiðslu á húsnæðiskostnaði, þá stefnir hér í fjöldagjaldþrota heimila á næstu misserum á árum, segir Jóhanna Sigurðardóttir m.a. í pistli sínum.
Meira

11. desember
Hroki og dónaskapur
Dramb og yfirgangur einkennir stjórnarliðið og ríkisstjórnina þessa dagana. S.l. miðvikudag var lagt fram stjórnarfrumvarp, þar sem nánast er hunsaður dómur Hæstaréttar og trillukörlum fórnað til að geta varið sægreifana. Í dag urðu svo stjórnarliðar í heilbrigðis- og trygginganefnd sér til skammar með því að leggja til nýjar grundvallarbreytingar á frumvarpinu án þess að heimila umræðu í nefndinni um málið. Síðan kóróna þeir dónaskapinn með því að neita samtökum og stofnunum, eins og Mannvernd og Siðfræðiráði LÍ að koma á fund nefndarinnar…
Meira

10. desember
Hæstarétti og fólkinu gefið langt nef
Það eitt er klárt, að ríkisstjórn Davíðs Oddssonar situr föst við sama heygarðshornið. Hún sættir sig ekki við úrskurð Hæstaréttar um jafnræði þegnanna og sameign þjóðarinnar á fiskimiðunum. Það fór eins og ég og fleiri óttuðumst að ríkisstjórnin ætlar að reyna að þröngva frumvarpi í gegn með því einu að breyta 5.greininni og sakar svo Hæstarétt um að hafa fellt dóm sem komi smábátaútgerð og byggðunum í landinu í uppnám! ….
Meira

9. desember
Ráðherra í örmum Kolkrabbans
Bankamálaráðherrann viðurkenndi í umræðunum á þingi í gær, að hægt hefði verið að afla mun meiri fjár með sölu bankanna. Reynslan erlendis frá sýndi hægt hefði verið að fá 30-50% meira með þeirri aðferð að selja stærri hlut. Og þó það sé þannig viðurkennt af ráðherra að verðbréfafyrirtæki og lánastofnanir hafi platað ríkisstjórnina og tekið á örfáum dögum til sín 1-2 milljarða í gróða af því bankarnir voru greinilega seldir á undirverði, þá ætlar ráðherrann ekkert að gera. Kolkrabbinn fitnar en stærstur hluti landsmanna tapar, segir Jóhanna, m.a. í pistli sínum….
Meira

7. desember
Geðvonska Davíðs
Dómur Hæstaréttar um að lagaákvæði fiskveiðistjórnunarlaga væri brot á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar átti engum að koma á óvart, svo oft og ítrekað hefur verið rætt um brot á mannréttindum og jafnræðisreglunni í tengslum við gjafakvótann.-Ráðherrar keppast við að gera lítið úr dómnum og jafnvel stjórnarskránni...
Meira

4. desember
Ríkisstjórn gegn ungu fólki
Þessi ríkisstjórn hefur ekki auðveldað barnafólki eða námsmönnum róðurinn. Þvert á móti hefur ríkisstjórnin fækkað þeim sem fá barnabætur um 24 þúsund og haft af barnafólki 500 milljónir króna í barnabótum milli áranna 1997 og 1998. Reyndar er sama hvert litið er - hvartvetna fer unga fólkið halloka fyrir ríkisstjórn Davíðs Oddssonar. Það er því sérstakt íhugunarefni hvers vegna yfir 70% ungs fólks lýsir yfir stuðningi við ríkisstjórnarflokkanna…
Meira

3. desember
Börn aftarlega í forgangsröðinni
Í frumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi og undirrituð hefur flutt ásamt Rannveigu Guðmundsdóttur, Kristínu Ástgeirsdóttur og Bryndísi Hlöðversdóttur er lagt til að einstæðum foreldrum sem hafa á framfæri sínu barn á aldrinum 16-19 ára sé heimilt að nýta 80% af óráðstöfuðum persónuafslætti barna sinna. Áætla má að þetta taki til um 5 þúsund barna og að kostnaður ríkissjóðs sé um 400-500 m.kr sem er svipuð upphæð og lífeyririnn sem stjórnvöldu sömdu um fyrir bankastjórana á dögunum. Þannig er forgangsröð stjórnvalda…
Meira

2. desember
Milljarða skattsvik?
Tekjur ríkissjóðs af virðisaukaskatti af innlendri starfsemi hafa verulega dregist saman síðan árið 1993. Þannig minnkuðu tekjur ríkissjóðs vegna söluskatts af innlendri vöru og þjónustu um rúma 4 milljarða milli áranna 1994 og 1996. -Ákveðið hefur verið að að hrinda af stað viðamikilli athugun á sem flestum þáttum sem skattinn varða…
Meira

1. desember
Ósvífni forsætisráðherra
Á sama tíma og forsætisráðherra þykir greinilega allt í lagi að skattleggja desemberuppbót elli- og örorkulífeyrisþega uppí topp talar hann um ,,óskammfeilni" Reykjavíkurborgar vegna útsvarshækkunar. Einnig er vakin athygli á því að Davíð þegir þunnu hljóði um meirihluta flokks síns í Kópavogi sem hækkaði útsvar í 11.99 um áramótin 1996/97. Í a.m.k. tvö ár hefur útsvar því verið 0.75% hærra í Kópavogi þar sem íhaldið stjórnar en í Reykjavík þar sem Reykjavíkurlistinn fer með völdin.
Meira

30. nóvember
Einkavinavæðing eða almannahagsmunir
Fjársterkir aðilar eru þessa dagana að sölsa undir sig stóran hlut í bankakerfinu með löglegum en siðlausum hætti. Og eins og áður eru það ríkissjóður og skattgreiðendur sem tapa á sama tíma og pyngja kolkrabbans og fjársterkra aðila bólgnar út. Nú er komið í ljós að kennitölusöfnunina auðveldaði fjársterkum aðilum að vinna gegn útboðsmarkmiðum ríkisins -og bréfin virðast hafa verið seld langt undir raunvirði. -Kennitölumálið verður líklega tekið fyrir í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.
Meira

27. nóvember
54% einstæðra foreldra skulda meira en þeir eiga
54% eða 4200 einstæðir foreldrar af um 7800 sem telja fram til skatts skulduðu meira á árinu 1997 en þeir eiga. Til samanburðar má nefna að rúmlega 18% hjóna eru með neikvæðan eignarskattsstofn eða skuldir umfram eignir.
Meira

26. nóvember
Hafa þeir eitthvað að fela?
Fréttin í vefblaði sameiningar.is í gær vakti athygli mína. Þar sagði að á flokksþingi Framsóknarflokksins hefði gjaldkeri flokksins upplýst að það hefði gengið ævintýralega vel að lækka skuldir, en á 4 árum hefðu þær lækkað úr 100 milljónum króna í...
Meira

25. nóvember
Ráðherra á hálum ís
Einungis skerðingin á námsláni getur numið 76 þúsund krónum á ári eða sem svara heildarláni námsmanns í einn mánuð m.v. tæplega 30 þúsund króna leigu og um 13 þúsund kr. af leigunni endurgreiddar sem í húsaleigubætur. Svona óréttlæti, taldi ég að menntamálaráðherra myndi umsvifalaust leiðrétta, enda er um að ræða brot á jafnræðisreglu að ræða. En svar ráðherrans við fyrirspurn minni um það efni á Alþingi var nei. Kannske munum við veita námsmönnum með mikinn húsnæðiskostnað viðbótarlán - ekki nú - kannske seinna, sagði ráðherrann. Ef þetta er viðhorf menntamálaráðherra til jafnréttis til náms, þá er hann vissulega á hálum ís.
Meira

24. nóvember
Siðleysi vinnumálaráðherrans
Á sama tíma og forysta Landsbankans átti í viðræðum við stjórn hins nýja íbúðalánasjóðs um áframhaldandi þjónustu veðdeildarinnar, sem þjónað hefur Húsnæðisstofnun frá upphafi var félagsmálaráðherrann bak við tjöldin að semja um flutning verkefna til nýrrar innheimtudeildar á Sauðárkróki, -...
Meira

23. nóvember
Hlífiskjöldur auðjöfranna
Ríkisstjórnin hafnar aðgerðum til að auka skatttekjur ríkisins. Stjórnarandstaðan vildi ákveðið frítekjumark til að hlífa almennum sparnaði og skattlagningu á tekjur eins og söluhagnað og arð sem aukið hefði tekjur hins opinbera um 1100 m.kr. Sú fjárhæð hefði leyst vanda stóru sjúkrahúsanna í Reykjavík...
Meira

20. nóvember
Ráðamenn í vondum málum
Geir Haarde, fjármálaráðherra, Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Verslunarráðs og Pétur Blöndal fyrrum forstjóri Kaupþings falla allir í sömu gryfjuna, þegar þeir verja 1500 miljjón króna gjöf ríkisstjórnarinnar til fjármagnseigenda. Þeir byggja málflutning sinn á lagabreytingu sem enn er ekki komin til...
Meira

20. nóvember
Hlunnindi: mikill munur milli kynja
Mun færri konur en karlar njóta nefndarlauna og -þóknana, bílastyrkja og aksturspeninga. Af 30 milljónum sem greiddar voru í nefndarlaun og þóknanir gengu einungis 5 milljónir til kvenna. Á vegum B-hluta stofnana ríkisins eru milli 20-30 stofnanir, fyrirtæki og sjóðir...
Meira

19. nóvember
Veisla hjá kolkrabbanum
Með löglegum en siðlausum hætti virðast fjársterkir aðilar geta sölsað undir sig dágóðan hlut í bönkunum á hagstæðu verði. Til þess eru notuð leynileg og purrkunarlaus meðöl. Í útboðsveislunni á FBA á dögunum fengu t.d.. starfsmenn eins fyrirtækis bréf þar sem undirstrikað var að efni þess væri ,,algerlega óheimilt" að ræða við nokkurn aðila. Bankaeftirlitð þarf tafarlaust að fara í málið.
Meira

18. nóvember
Sjö stjórar í 275 utanlandsferðir
Á 5 ára tímabili nam heildarferðakostnaður vegna utanlandsferða stjórnenda og starfsmanna Flugmálastjórnar rúmum 153 milljónum króna og heildarferðadagar voru alls 6284. Hvernig er það hægt að á vegum stofnunar sem telur 251 starfsmann skulu ferðardagar erlendis vera 1256 á ári?
Meira

17. nóvember
Námsmönnum mismunað
Húsaleigubætur námsmanna skerða lán til þeirra. Þá eru húsaleigubætur skattlagðar meðan vaxtabætur eru skattfrjálsar. Menntamálaráðherra krafinn svara. Tekjulægstu námsmennirnir sem eru á leigumarkaðnum búa við að húsaleigubætur sem þeir fá eru skattlagðar meðan námsmenn sem betur eru stæðir og eiga...
Meira

16. nóvember
Helmingur öryrkja undir fátæktarmörkum
Meðan launavísitala hefur hækkað um 30% á síðustu 5 árum hafa örorkulífeyrir og tekjutrygging einungis hækkað um 17.4%. Þeir tekjulægstu hafa gleymst í góðærinu. -Jafnaðarmenn á þingi vilja skýrslu um kjör og aðbúnað öryrkja í landinu. Þeir tekjulægstu hafa gleymst...
Meira

 
 
  Forsíða | Pistlar | Greinar | Um Jóhönnu | Á Alþingi | Senda póst