Forsíða
Pistlar
Greinar
Um Jóhönnu
Á Alþingi
Senda póst
Jóhanna Sigurðardóttir
 

Skráning á póstlista
Pistlar
Greinar
Netfang:






 
1. desember 1998

Ósvífni forsætisráðherra

Forsætisráðherra kastaði sannanlega steini úr glerhúsi í gær. Á sama tíma og forsætisráðherra þykir greinilega allt í lagi að skattleggja desemberuppbót elli- og örorkulífeyrisþega uppí topp talar hann um ,,óskammfeilni" Reykjavíkurborgar vegna útsvarshækkunar. Lífeyrisþegar búa þó við það að geta mest fengið um 14.300 kr. í desemberuppbót meðan launþegar fá nú í desember í eingreiðslu 26 þúsund krónur, sem er sama fjárhæð hjá öllum óháð tekjum.
39% AF JÓLABÓNUS LÍFEYRISÞEGA Í RÍKISSJÓÐ
Desemberuppbót lífeyrisþega reiknast einungis af tekjutryggingu, heimilisuppbót og sérstakri heimilisuppbót. Þeir sem hafa enga heimilisuppbót sem er mjög stór hópur lífeyrisþega fá eingöngu rúmar 8.300 í desemberuppbót, sem síðan skerðist með skertri tekjutryggingu.
Af hverri krónu af þessari litlu desemberuppbót lífeyrisþega hirðir ríkið aftur í skatt 3300 kr af þessum 8.300 kr. og af fullri desemberuppbót 14 þúsund krónunum hirðir forsætisráðherra 5500 kr.
Þegar ég spurði forsætisráðherra á Alþingi í gær hvort ekki væri ástæðu til að hækka desemberuppbót lífeyrisþega til samræmis við það sem launþegar fá og að hætt yrði skattlagningu af þessari litlu desemberuppbót lífeyrisþega hafði Davíð forsætisráðherra enga skoðun á því.
SKULDASLÓÐI ÍHALDSINS
Aftur á móti réðst hann með heift að hækkun á álagningu útsvars hjá borginni, sem ráðherra sveitastjórnarmála Páll Pétursson taldi eðlilega. Það kemur líka úr hörðustu átt þegar forsætisráðherra gagnrýnir útsvarshækkunin, því þörfina fyrir hækkun á útsvari má m.a. rekja til stjórnar sjálfstæðismanna á Reykjavíkurborg sem skildu eftir sig langan skuldaslóða á árinu 1994. Auk þess má rekja verulegan halla sveitarfélaga m.a. til þess að tekjur þeirra skertust verulega með útfærslu ríkisstjórnarinnar á fjármagnstekjuskatti.
EKKI SAMA HVER HÆKKAR ÚTSVARIÐ
Athyglisvert er að forsætisráðherra hefur aldrei gagnrýnt íhaldið í Kópavogi sem hækkaði útsvar í 11.99 um áramótin 1996/97. Í tvö ár hefur útsvar því verið 0.75% hærra í Kópavogi þar sem íhaldið stjórnar en í Reykjavík þar sem Reykjavíkurlistinn fer með völdin.Fullyrða má þó að félagsleg þjónusta sé mun slakari í Kópavogi. Einnig eru dagvistargjöld m.v. fyrirhugaða hækkun í Kópavogi í langflestum tilvikum hærri en í Reykjavík.
ATLAGA AÐ ÖLDRUÐUM OG ÖRYRKJUM
Þegar forsætisráðherra talar um óskammfeilni Reykjavíkurborgar vegna þessarar skattlagningar ætti forsætisráðherra að tala varlega. Davíð forsætisráðherra hefur engar áhyggjur af því að skattleggja að fullu örlítinn jólabónus til lífeyrisþega, sem er langt undir því sem launþegar fá, enda er það í takt við þá atlögu sem ríkisstjórnin hefur gert að öldruðum og öryrkjum á kjörtímabilinu.
Aðventuna ætti forsætisráðherra að nota til að huga að því hve mikið af þeim 100 milljörðum sem ríkisstjórnin hefur haft meira úr að spila en fyrri ríkisstjórn hefur runnið til láglaunahópa og lífeyrisþega á kjörtímabilinu. Staðreyndin er sú að ríkisstjórnin hefur fyrst og fremst verið að lækka skatta á fyrirtæki og fjármagnseigendur s.l. 4 ár.



 
 
  Forsíða | Pistlar | Greinar | Um Jóhönnu | Á Alþingi | Senda póst