Forsíða
Pistlar
Greinar
Um Jóhönnu
Á Alþingi
Senda póst
Jóhanna Sigurðardóttir
 

Skráning á póstlista
Pistlar
Greinar
Netfang:






 
3. desember 1998

Börn aftarlega í forgangsröðinni

Breyttar þjóðfélagsaðstæður, sem felast m.a. í auknum menntunarkröfum, leiða til þess að börn dveljast lengur í foreldrahúsum en áður og þurfa lengur á framfærslu foreldra sinna að halda. Núna búa um 80-90% ungmenna á aldrinum 16-18 ára í foreldrahúsum. ALVARLEGT UMHUGSUNAREFNI
Framfærslukostnaður vegna barna 16 ára og eldri er mjög mikill. Könnun sem Félags einstæðra foreldra lét gera fyrir nokkrum árum sýndi að framfærslukostnaður barna á aldrinum 13-15 ára var áætlaður um 500 þús. kr. árlega. Talið er að meðlagsgreiðslur dugi fyrir fjórðungi þess sem kostar að framfæra yngstu börnin og um 1/8 þess sem kostar að framfæra eldri börnin. Fram hefur komið að fjöldi einstæðra foreldra sem leita þarf fjárhagsaðstoðar hefur aukist verulega á s.l. árum og er nú um þriðjungur þeirra sem leita sér framfærsluaðstoðar hjá Reykjavíkurborg, en fækkað hefur á sama tíma í öðrum hópum sem þurfa aðstoð.
Einnig hefur verið bent á að einstæðir foreldrar höfðu að meðaltali á s.l. ári um þriðjung af tekjum hjóna og að þeir fengu minni launahækkun á s.l. ári en hjóna- eða sambúðarfólk.
Tæplega 54% einstæðra foreldra eða um 4200 skulda meira en þeir áttu á s.l. ári á sama tíma og 18% hjóna voru í þeirri stöðu. Fram hefur komið að fylgni er milli þjóðfélagsstöðu foreldra og heilsufars barna þeirra. Líka í því samhengi hlýtur það að vera alvarlegt umhugsunarefni, að einstæðir foreldra eru að stórum hluta láglaunafólk.
5 ÞÚSUND BÖRN OG SEX BANKASTJÓRAR
Áætla má að börn einstæðra foreldra á aldrinum 16-19 ára séu um 5 þúsund og að kostnaður ríkissjóðs við að heimila einstæðum foreldrum að millifæra ónýttan persónuafslátt barna sinna kosti ríkissjóð um 400-500 m.kr.
Með því að breyta útfærslu fjármagnstekjuskatts, þannig að fjársterkir aðilar og stóreignamenn séu hinir raunverulegu greiðendur hans mætti auðveldlega ná í þessa peninga. Það er líka ágætt að muna að við erum hér að ræða um sömu fjárhæð og lífeyri 6 bankastjóra kostar skattgreiðendur. Hvort á að hafa forgang að tryggja lúxuslíf sex bankatjóra í ellinni eða að bæta aðbúnað 5 þúsund barna og foreldra þeirra.



 
 
  Forsíða | Pistlar | Greinar | Um Jóhönnu | Á Alþingi | Senda póst