Forsíða
Pistlar
Greinar
Um Jóhönnu
Á Alþingi
Senda póst
Jóhanna Sigurðardóttir
 

Skráning á póstlista
Pistlar
Greinar
Netfang:






 
30. mars 1999

Þreföld vaxtahækkun

Heldur hljóðlega hefur farið að lánskjör á leiguíbúðum hjá íbúðalánasjóði hafa rokið upp. Þannig munu vextir á þorra leiguíbúða sem úthlutað verður á þessu ári hækka úr 1% í ýmist 2.4% vexti eða 3.2% vexti. Vextir af leiguíbúðum munu því allt að því rúmlega þrefaldast.
Félagsmálaráðherra hefur sagt að á þessu ári verði úthlutað 500 leiguíbúðum. Hann lætur þess hinsvegar ekki getið að þessi fjöldi leiguíbúða er m.a. háður því skilyrði að svo margar eignaíbúðir í félagslega kerfinu komi til innlausnar á árinu. M.ö.o fjöldi íbúða ræðst af fjölda innlausnaríbúða sveitarfélaga og því fé sem íbúðalánasjóðurinn fær við uppgreiðslu lána vegna félagslegra eignaríbúða og seldar eru á almennum markaði.
Enn alvarlegra í málflutningi ráðherrans er að hvergi er þess getið að vextir af nálægt 4 af hverjum 5 þessara íbúða munu bera allt að 3.2% vexti en ekki 1% eins og lánskjör leiguíbúða hafa verið undanfarin áratug. Þannig munu 120 leiguíbúðir af þessum 500 bera 1% vexti, en 380 leiguíbúðir munu ýmist bera 3.2% vexti eða 2.4% vexti. Áætlað er að þetta muni hækka leigu á meðalíbúð um 10 þúsund krónur á mánuði.
Hækkunin bitnar sérstaklga á námsmönnum og öryrkjum
Nálægt 200 íbúðir sem áformað er að hægt verði að breyta úr eignaríbúðum í félagslega kerfinu í leiguíbúðir eiga að bera 3.2% vexti og annar eins fjöldi 2.4% vexti, en þar er um að ræða eignaríbúðir í félagslega kerfinu sem sveitarfélögin leysa til sín. Áætlanir virðast ganga út á að leigubúðirnar með hærri vaxtakjörum gangi til félagasamtaka, eins og Þorskahjálpar, Öryrkjabandalagsins og námsmannaíbúða. Þannig fékk t.d. Félagsstofnun stúdenta úthlutað 22 íbúðum fyrir námsmenn og voru 17 þeirra með 3.2% vöxtum.
Þessi vaxtahækkun kemur fram í hærri leigu sem námsmenn þurfa að greiða. Hér er um algjöra stefnubreytingu að ræða, sem bitna mun með fullum þunga á verst stöddu hópunum í þjóðfélaginu. Í því sambandi má minna á að jafnaðarmenn reyna ævinlega að halda óbreyttum vaxtakjörum á leiguíbúðum til sveitarfélaga og félagasamtaka. Ástæða þess er einfaldlega sú að þeir sem fá inní þessum íbúðum eru yfirleitt þeir hópar sem lökust hafa kjörin eins og öryrkjar, námsmenn og einstæðir foreldrar.
Samfylkingin mun snúa þessari þróun við komist hún til valda og endurreisa á nýjan leik félagslega aðstoð í húsnæðismálum fyrir þá sem höllum fæti standa í þjóðfélaginu.



 
 
  Forsíða | Pistlar | Greinar | Um Jóhönnu | Á Alþingi | Senda póst