Forsíða
Pistlar
Greinar
Um Jóhönnu
Á Alþingi
Senda póst
Jóhanna Sigurðardóttir
 

Skráning á póstlista
Pistlar
Greinar
Netfang:






 
23. apríl 1999

Sjálfstæðisflokkurinn skilar auðu

Kosningabaráttan hefur hún snúist um stefnu Samfylkingarinnar. Fólk um allt land hefur tekið vel stefnu okkar og þá nýju sýn sem hún boðar í þjóðfélagsmálunum. Sérstaka athygli hefur vakið stefnan í menntamálum og fjölskyldumálum og á hve traustum fjárhagsgrundvelli tillögur Samfylkingarinnar byggja. Ljóst er að grundvallarbreyting verður á stefnu stjórnvalda fái Samfylkingin umboð kjósenda til að leiða þjóðina inní nýja öld. Þá verður sett í öndvegi jöfnuður og réttlæti í skiptingu þjóðartekna.
Sú nýja lífssýn sem við boðum felur í sér ábyrga stefnu gagnvart umhverfinu og náttúru landsins. Hún felur í sér metnað til að bæta kjör alls almennings og gæta meira jafnréttis í hvívetna. Í atvinnulífinu viljum við að gætt sé meira jafnræðis milli samkeppnisaðila.
Sjálfstæðisflokkurinn virðist aftur á móti ætla að skila auðu í þessum kosningum. Formaðurinn sést lítið í baráttunni, nema af og til í prívat viðtölum við fjölmiðla þar sem hann hellir úr skálum reiði sinnar yfir Samfylkinguna. Í kosningabaráttunni hefur formaðurinn aðallega vakið athygli fyrir íhlutun í tjáningafrelsi einstaklings vegna smásögu í lesbók Mbl. Engin kosningastefnuskrá hefur birst frá sjálfstæðismönnum þó aðeins sé um hálfur mánuður til kosninga.
Ef minnst er á loforðin frá landsfundi Sjálfstæðisflokksins fyrir nokkrum vikum, er viðkvæði frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins að það sé ekkert að marka þau. Það á t.d. við um loforðið til lífeyrisþega , þar sem landsfundurinn samþykkti að afnema skuli tekjutengingu lífeyrisgreiðslna almannatrygginga. Allir lífeyrisþegar áttu að fá það sama úr almannatryggingakerfinu eða óskertar 63 þúsund krónur og hefur verið áætlað að það loforð eitt og sér kosti um 12-15 milljarða króna. Nú hefur komið í ljós að þetta var bara allt í plati, enda hafa frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins afgreitt þetta mál út af borðinu. Landsfundurinn sjálfur felldi svo tillögu um sjálfstæðan rétt feðra til fæðingarorlofs.
Það virðist því sem Sjálfstæðisflokkurinn reyni að komast upp með að skila auðu í kosningunum í öllum málaflokkum Það ættu kjósendur að bera saman við ítarlega stefnu Samfylkingarinnar í öllum málaflokkum- stefnu sem er vel undirbyggð fjárhagslega og sem hrint verður í framkvæmd fáum við til þess stuðning kjósenda.



 
 
  Forsíða | Pistlar | Greinar | Um Jóhönnu | Á Alþingi | Senda póst