24. nóvember 1999
Starfshættir dómstóla
Um þetta er m.a. spurt í fyrirspurn sem liggur fyrir Alþingi en dómsmálaráðherra hefur ekki enn svarað. Að öllu samanlögðu er ljóst að alvarleg brotalöm er í réttarfarinu í kynferðisbrotamálum. Brýnt er því að gera úttekt á öllum ferli kærumála í réttar- og dómskerfinu. Athuga þarf hvaða úrbætur eru nauðsynlegar í allri málsmeðferðinni, frá því að kæra berst og þar til úrskurður dómstóla liggur fyrir. Einnig verður að endurskoða lagákvæði er varða starfshætti dómstóla og hvort þörf er á að herða refsiúrræði.
Á þessu er tekið í þingsályktun um bætta stöðu þolenda kynferðisbrota sem ég hef flutt á Alþingi ásamt Einari Má Sigurðarsyni og Merði Árnasyni.