30. nóvember 1999
Útlán innlánsstofnana tvöfaldast
Meðan útlánin eru á blússandi ferð hjá bönkum og sparisjóðum, sem ýtir undir þennslu og verðbólgu í þjóðfélaginu, dregst eiginfjárhlutfall viðskiptabanka og sparisjóða saman. Þannig hefur eign fjárhlutföll viðskiptabanka og 6 stærstu sparisjóða lækkað úr 10.6% árið 1995 í 9.3% í júní 1999. Þáttur víkjandi lána hefur einnig verið að aukast, en eiginfjárhlutfall án víkjandi lána var 9.4% hjá viðskiptabönkum og 6 stærstu sparisjóðunum árið 1995 en var komið í 6.9% í júní á þessu ári. Samkvæmt lögum er miða við að eigið fé fari ekki undir 8% á móti skilgreindum áhættugrunni.
Þessi þróun er mjög áhættusömu og veikir meira en hætta er á takandi stoðir bankakerfisins. Því ber tafarlaust að herða reglur um hlutfall eiginfjár og gefa Fjármálaeftirlitinu svigrúm með lögum til að ákveðið eiginfjárhlutfall banka og sparisjóða.