7. desember 1999
Forsætisráðherra hreinsi málið
Öllum efasemdum um að ráðherrar, að ekki sé talað um forsætisráðherra,hafi veitt Alþingi rangar eða villandi upplýsingar verður að eyða. Það er því skylda forsætisráðherra við þing og þjóð að sannreyna að hann hafi farið með rétt mál á Alþingi varðandi hlut Kaupþings og sparisjóðanna í sölunni á Fjárfestingarbankanum. Það gerði hann ekki með sannfærandi hætti á Alþingi í gær. Meðan forsætisráðherra hreinsar ekki málið er bæði hægt að draga trúverðugleika hans í efa, auk þess sem ráðherrann sýnir Alþingi lítilsvirðingu.
Í yfirlýsingu forstjóra og stjórnarformanns Kaupþings 17. nóvember s.l. vísa þeir á bug fullyrðingum forsætisráðherra þess efnis að Kaupþing og sparisjóðirnir hafi gert með sér baksamning eða leynisamning við Orca-hópinn til að ná meirihluta í FBA. Jafnframt kemur fram í ályktun Kaupþingsmanna að fullyrðing forsætisráðherra á Alþingi sé líka röng um að Kaupþing og sparisjóðirnir hafi einungis verið tilbúnir til að greiða 8 milljarða fyrir allt hlutafé í FBA. Í yfirlýsingu þeirra segir að þeir hafi verið tilbúnir til að greiða áþekka fjárhæð og fékkst fyrir hann í útboðinu sé hún framreiknuð til dagsins í dag. Það eru rúmir 14 milljarðar króna.
Forsætisráðherra sagði á Alþingi í gær, að í fjölda manna viðurvist í forsætisráðuneytinu, hefðu forsvarsmenn Kaupþings greint frá hvað þeir væru tilbúnir til að greiða fyrir bankann. Það ætti því að vera auðvelt fyrir ráðherrann að fá opinberlega staðfestingu þeirra sem vitni urðu að þessu tilboði Kaupþingsmanna, sem líklega hafi verið einhverjir aðrir ráðherrar eða ráðuneytismenn. Í annað stað á forsætisráðherra að gera til þess kröfu að Kaupþingsmenn birti leynisamningin opinberlega. Meðan ráðherrann lætur það kyrrt liggja er hægt að draga í efa sannleiksgildi orða hans á Alþingi. Forsætisráðherra getur ekki undir því setið, að dreginn sé í efa trúverðugleiki hans.