Forsíða
Pistlar
Greinar
Um Jóhönnu
Á Alþingi
Senda póst
Jóhanna Sigurðardóttir
 

Skráning á póstlista
Pistlar
Greinar
Netfang:






 
5. janúar 2000

Lífeyrisþegar sitji við sama borð og aðrir

Það er engin sanngirni í því að lífeyri öryrkja og aldraðra taki ekki mið af því sem almennt gengur og gerist í þjóðfélaginu. Allt s.l. kjörtímabil drógust lífeyrisgreiðslurnar aftur úr öðrum kjörum í þjóðfélaginu. Má sem dæmi nefna að launavísitala á árinu 1998 sem laun almennt í landinu hækkuðu í samræmi við hækkaði að meðaltali um 9.4% á því ári en hækkun neysluvísitölunnar sem lífeyrisgreiðslurnar breyttust samkvæmt hækkaði aðeins um 1.7% Veruleg raunlækkun hefur einnig orðið á skattleysismörkunum, sem m.a. hefur bitnað á lífeyrisþegum. Á árunum 1995 tryggðu skattleysismörkin að lífeyrisþegar þurftu ekki að greiða skatta af lífeyrisgreiðslum. Þeir sem einungis fá lífeyri frá almannatryggingum hafa því þurft að greiða um 6-8 þús. kr. skatt af sínum lífeyri vegna verulegra raunlækkunar á skattleysismörkum



 
 
  Forsíða | Pistlar | Greinar | Um Jóhönnu | Á Alþingi | Senda póst