Forsíða
Pistlar
Greinar
Um Jóhönnu
Á Alþingi
Senda póst
Jóhanna Sigurðardóttir
 

Skráning á póstlista
Pistlar
Greinar
Netfang:






 
9. febrúar 2000

Alþingi fái upplýsingar um veðsetningu á kvóta

1. Hver hefur verið þróun lánveitinga lánastofnana til sjávarútvegsfyrirtækja árlega síðustu fimm ár?
2. Í hve mörgum fiskiskipum með aflahlutdeild hefur verið tekið veð fyrir þessum lánveit ingum árlega síðustu fimm ár og hvað liggur slík veðsetning að baki háum lánveitingum lánastofnana til sjávarútvegsins á þessu tímabili, sundurliðað eftir árum?
3. Hverjar voru eftirstöðvar lána hjá lánastofnunum sem tryggð voru með veði í fiskiskip um með aflahlutdeild um síðustu áramót?
4. Hefur eitthvað verið um að lánastofnanir hafi krafist veðsetningar í fiskiskipum með aflahlutdeild vegna skuldbreytinga lána sem tekin voru fyrir gildistöku laga um samningsveð frá maí 1997 í stað annarra ábyrgða? Ef svo er, í hve miklum mæli?
Hér er um mjög mikilvægar upplýsingar að ræða, sem nauðsynlegt er að löggjafarvaldið fái fram og eðlilegt að framkvæmdavaldið svari með skýrum hætti, enda liggja þessar upplýsingar fyrir hjá lánastofnunum. Vænta verður að viðskiptaráðherra svari því fyrirspurninni fljótt og vel, sem eru afar þýðingarmiklar fyrir þá umræðu sem nú fer fram um kvótamálin og breytingar á sjávarútvegsstefnunni.



 
 
  Forsíða | Pistlar | Greinar | Um Jóhönnu | Á Alþingi | Senda póst