Forsíða
Pistlar
Greinar
Um Jóhönnu
Á Alþingi
Senda póst
Jóhanna Sigurðardóttir
 

Skráning á póstlista
Pistlar
Greinar
Netfang:






 
1. mars 2000

Hækkun bensínverðs eykur skuldir heimilanna um 4800 milljónir króna

30 milljarðar á ári í tekjur af bílum og umferð
Tekjur ríkissjóðs af bílum og umferð eru um 30 milljarðar króna á ári eða um 200 þúsund á hvern bíleiganda. Bensínverð hér á landi er með því hæsta sem gerist í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Hér á landi fær ríkið sem svarar 4% af þjóðarframleiðslu í tekjur af umferðinni meðan meðaltal annarra Evrópulanda er 3%.
Mikil áhrif á útgjöld heimilanna
Á einu ári hefur bensínlítrinn hækkað um nálægt 20 kr., en að 70% hluta er um að ræða skatt til ríkisins sem hefur mikil áhrif á útgjöld bifreiðaeigenda. Þetta hækkar rekstrarkostnað fjölskyldubílsins um 35-38 þús. kr. á ári. Bensínverðshækkunin hefur einnig mikil áhrif á vísitölu og skuldir heimilanna. Frá febrúar 1999 –mars 2000 hefur vísitalan hækkað um 1.05% vegna bensínhækkunarinnar en bensínhækkunin ein og sér sem varð í dag veldur 0.12% hækkun á vísitölunni.
Þetta leiðir til rúmlega 5 milljarða hækkunar á skuldum heimilanna. Greiðslubyrði af 6 milljóna króna lán hefur hækkað um 55 þúsund krónur á ári vegna bensínshækkunarinnar. Aðeins hækkunin sem varð í dag leiðir til 6.200 króna hækkunar á ári af 6 milljón króna húsbréfaláni.
Gjaldtaka af bensíni endurskoðuð í heild sinni
Fulltrúar Samfylkingarinnar í Efnahags-og viðskiptanefnd Alþingis, lögðu til að ákvæði laga um gjaldtöku af bensíni ætti að endurskoða í heild sinni og leggja niðurstöðuna fyrir Alþingi á hausti komandi. Markmið endurskoðunarinnar var tvíþætt: Í fyrsta lagi að skattlagningu bensíns væri þannig háttað að hún stuðlaði að umhverfisvernd og í öðru lagi að skoða hvernig best megi framkvæma hana þannig að verðlag innanlands verði ekki eins háð sveiflum á heimsmarkaðsverði. Þessi tillaga var felld og náði ekki fram að ganga.



 
 
  Forsíða | Pistlar | Greinar | Um Jóhönnu | Á Alþingi | Senda póst