Forsíða
Pistlar
Greinar
Um Jóhönnu
Á Alþingi
Senda póst
Jóhanna Sigurðardóttir
 

Skráning á póstlista
Pistlar
Greinar
Netfang:






 
6. júní 2000

Skyldur alþjóðasamfélagsins á sviði mannréttinda- og jafnréttismála

Gífurleg heilbrigðisvandamál
Hin miklu heilbrigðisvandamál ekki síst í vanþróuðu ríkjunum eru alþjóðleg vandamál, sem þjóðir heims geta ekki vikið sér undan. Á þeim stöðum í Suður Afriku þar sem HIV smit og alnæmi er hvað útbreiddast eru 40% þungaðra kvenna smitaðar og áætlað er að tugir milljóna barna verði munaðarlaus vegna þessa hræðilega sjúkadóms.
Gróf mannréttindabrot - mannsal, kynlífsþrælkun og barnavændi
Hin grimmu og grófu mannréttindabrotum sem viðgangast enn víða um heim ekki síst gagnvart konum og börnum eru líka svívirðilegir og hrikalegir glæpir. Þjóðir heims sem virða grundvallarmannréttindi hafa m.a. þær skyldur að vinna af fullri hörku gegn mannsali, kynlífsþrælkun, barnavændi og hverskyns ofbeldi gegn konum og börnum.
Virða ber undanbragðalaust alþjóðlegar skuldbindingar
Útrýma þarf einnig og banna með lögum aðgerðir eins og umskurði kvenna og allt ofbeldi og misnotkun sem þrífst í skjóli gamalla hefða og menningar. Þjóðir heims eiga að fordæma slíkt ofbeldi og það er algjörlega óásættanlegt að hægt sé að víkja sér undan alþjóðlegum skuldbindingum með skírskotun í siðvenjur, hefðir eða trú.
Gróf mannréttindabrot og stefna þjóðernishreinsunar á stríðshrjáðum og hernumdum svæðum viðgangast enn, en konur og börn eru um það bil 80% af þeim milljónum flóttamanna og annarra sem hrakist hafa frá ættlöndum sínum eða frá heimkynnum í eigin landi. Þessi fórnarlömb vopnaðra átaka konur og börn úr röðum almennra borgara eru oft fleiri en þeir sem farast og falla í bardögum. Þetta fólk þarfnast alþjóðlegrar verndar og að þjóðir heims virði grundvallar mannréttindi þeirra. Sama gildir líka um grundvallarmannréttindi innflytjenda, en brýnt er orðið að mótuð verði hér á landi stefna í málefnum innflytjenda eins og Samfylkingin hefur lagt til.



 
 
  Forsíða | Pistlar | Greinar | Um Jóhönnu | Á Alþingi | Senda póst