1. ágúst 2000
Efnahags- og viðskiptanefnd fundar um hækkanir tryggingafélaganna
Nú reynir á eftirlitsskyldu Alþingis með framkvæmdavaldinu
Eftirlitshlutverk Alþingis með framkvæmdavaldinu er afar mikilvægt. 70-80% hækkun á iðgjöldum bifreiðatrygginga á stuttum tíma er ærið tilefni til að efnhags- og viðskiptanefnd komi saman og fari í saumana á málinu. Ástæður þess voru ítarlega skilgreindar á þessum vettvangi s.l. föstudag. Mikilvægt er að efnahags- og viðskiptanefnd fari ítarlega í saumana á þessu máli. Ljóst er að ef nefndin svo kýs þá getur hún haft veruleg áhrif til að koma í veg fyrir augljós samráð tryggingafélaganna í iðgjaldaákvörðunum og óeðlilegar hækkanir iðgjalda sem viðgengist hafa og væntanlega að óbreyttu munu halda áfram. Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis gengur í gegnum ákveðinn prófstein í því efni n.k. fimmtudag um hvernig Alþingi rækir eftirlitshlutverk sitt með framkvæmdavaldinu.