7. ágúst 2000
Kjarasamningar og barnabætur
Svikin loforð framsóknarmanna
Ástæða er til að minna á þessa staðreynd í ljósi þess að í nýgerðum kjarasamningum var samið um að dregið skyldi úr tekjutengingu barnabóta. Á öllum Norðurlandanna utan Íslands eru barnabætur ótekjutengdar. Einnig var helsta loforð Framsóknarflokksins í síðustu alþingiskosningum að tryggja barnabætur til allra barnafjölskyldna með því að koma á svokölluðum barnakortum . Efndirnar við verkalýðshreyfinguna og kjósendur Framsóknarflokksins birtist enn og aftur á þessu ári með verulegri fækkun þeirra sem fá barnabætur og skertu framlagi til þeirra úr ríkissjóði.