10. ágúst 2000
Högg fyrir fjölda heimila
Heimatilbúinn vandi
Í ljós er nú komið við álagningu skatt að það hefur gengið eftir að vaxta- og barnabætur fjölda heimila í landinu hafa skerst verulega. Vísvitandi gengu því stjórnarliðar til þess verks í vor að láta gífurlega hækkun á fasteignaverði á höfuðborgarsvæðinu skerða vaxta og barnabætur, en helsta ástæða verðsprenginga á fasteignaverði er breyting sem gerð var á húsnæðiskerfinu fyrir tveimur árum síðan. Afleiðingar þessa breytinga hafa verið gífurlegt högg fyrir fjölda heimila í landinu. Þær má sjá í 30-40% hækkun á fasteignaverði, 800 milljón króna hækkun á eignaskatti á milli ára, mikilli skerðingu á vaxta- og barnabótum, 15-20% afföllum af húsbréfum, hækkun á vöxtum á leiguíbúðum og biðlista þar sem 2000 heimili í landinu bíða eftir leiguíbúðum. Loks er afleiðinging mikil hækkun neysluvísitölu, sem er ein helsta ástæðan þess að verðbólgan er komin af stað sem sett hefur kjarasamningana í uppnám og stefnt stöðugleikanum í tvísýnu