23. ágúst 2000
Ofurtollar og einokun á grænmetismarkaði
Svör vantar frá Samkeppnisstofnun
Landbúnaðarráðuneytið fór þess á leit við Samkeppnisstofnun að hún svaraði ofangreindum spurningum. Samkeppnisstofnun hafði þá ekki tiltæk svör við spurningunum, en í skýrslunni kom fram að verið væri að vinna að þessari athugun og átti henni að ljúka í nóvember s.l. Brýnt er að Samkeppnisstofnun ljúki þessari athugun, ásamt sambærilegri könnun sem í gangi er um matvörumarkaðinn almennt. Eftir því er nú beðið og eftir því verður gengið. Við það verður ekki búið að Samkeppnisstofnun geti ekki vegna fjárskorts sinnt því hlutverki sínu að tryggja öfluga samkeppni og koma í veg fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu fyrirtækja, sem treystir best hag neytenda.