3. október 2000
Skuggahlið fjárlagafrumvarpsins
Ráðist að kjörum þeirra sem minnst hafa fyrir
Nokkur dæmi skuli hér tekin:
Vexti á leiguíbúðum á að færa uppí markaðsvexti. Líklegar afleiðingar þess eru stöðvun á uppbyggingu leiguíbúða eða veruleg hækkun á húsleigu hjá láglaunafólki. Lífeyrisþegum á að skammta 2000 króna hækkun á öllu næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Spara á 370 milljónir í lyfjakostnaði m.a. með aukinn greiðsluþátttöku sjúklinga. Taka á 372 milljónir af 607 milljóna króna framkvæmdafé framkvæmdasjóð fatlaðra í ríkissjóð og skilja hann eftir með 235 milljónir króna., sem er þrefalt lægri fjárhæð en fer til að opna sendiráð í Tokýó.
Framlag til fíknefna og löggæslu skorið niður.
Draga á úr löggæslu í Reykjavík og lækka framlög til aðgerða gegn fíkniefnum, sem er enginn sparnaður heldur getur leitt til aukinn úgjalda bæði í félags- og heilbrigðiskerfinu. Niðurskurður til löggæslu er auðvitað óverjandi á sama tíma og umferðaslys aukast og umferðarþungi fer sívaxandi. Af tæpum 39 milljónum sem fer til átaks í fíkniefnamálum á vegum dómsmálaráðuneytisins í ár eru skornar niður 10 milljónir á næsta ári, sem er skelfilegt á sama tíma og marg bendir til aukinnar fíkniefnaneyslu. Niðurskurður um 800-900 milljónir króna til vegamála er líklegt að lendi að mestu á höfuðborgarsvæðinu, þar sem iðulega er hættuástand í umferðinni á álagstímum
Þennsla en ekki aðhald
Það er öfugmæli að kalla þessi fjárlög aðhaldsfjárlög eins og fjármálaráðherra gerir. Tekjuafgangurinn skýrist að verulegu leyti af þennslu og með því að hlunnfara verst stöddu hópana eins og lífeyrisþega um marga milljarða króna á ári.
Þannig aukast skattar af vöru og þjónustu um 6 milljarða kjróna, tekjuskattur einstaklinga um 4 milljarða og eignskattar hækka um 1 milljarð króna vegna stórhækkaðs fasteignamats. Aftur á móti er gert ráð fyrir lækkun á sköttum fyrirtækja og fjármagnseigenda. Við þessa skuggahlið fjárlaganna bætist svo að viðskiptahallinn var á s.l. ári rúmir 40 milljarðar króna og stefnir í að hann aukist í 54 milljarða á þessu ári.