6. mars 2001
Refsivert að veita Alþingi rangar eða villandi upplýsingar
Grundvallaratriði að hægt sé að treysta upplýsingum frá ráðherra
Markmið þess frumvarps er að styrkja lög um ráðherraábyrgð og veita með því ráðherrum nauðsynlegt aðhald, en mikilvægt er að hægt sé að treysta upplýsingum sem ráðherrar gefa Alþingi. Það er grundvallaratriði til að styrkja þingræðið í landinu og eftirlitshlutverk Alþingis með framkvæmdarvaldinu.
Efni frumvarpsins tekur til ábyrgðar ráðherra gagnvart Alþingi, ef hann greinir rangt frá, gefur þingmönnum og þinginu villandi upplýsingar eða leynir upplýsingum sem mikilvægar eru fyrir meðferð mála á Alþingi. Þannig á að taka af öll tvímæli um að lög um ráðherra ábyrgð taki til framangreindra tilvika, þ.e. ef ráðherrar veita rangar eða villandi upplýsingar við fyrirspurnum frá alþingismönnum eða við meðferð mála á Alþingi, svo og gagna og upp lýsinga sem ráðherrar eða ráðuneytin gefa Alþingi eða einstökum þingnefndum við umfjöllun stjórnarfrumvarpa eða annarra mála sem fyrir liggja
Trúnaðarbrestur
Hér er um að ræða sambærilegt ákvæði og finna má í dönskum lögum um ráðherraábyrgð, en núgildandi lög um ráðherraábyrgð taka ekki sérstaklega til ábyrgðar ráðherra gagnvart Alþingi. Slíkt get ur leitt til trúnaðarbrests milli þingsins og ráðherra, sem of oft hefur komið upp milli þingmanna og ráðherra, þegar ætla má að þeir hafi veitt Alþingi rangar eða villandi upplýsingar. Auk þess er hætta á að ef vafi leikur á að ráðherrar gefi Alþingi réttar upplýsingar gæti það leitt til óvandaðrar málsmeðferðar og lagasetningar sem byggðist ekki á staðreyndum um efni máls. Eigi lög um ráðherraábyrgð að taka til rangra og villandi upplýsinga sem ráðherra gefur Alþingi er nauðsynlegt að bæta slíku ákvæði í lögin, eins og gert var við dönsku lögin um ráðherraábyrgð. Með því verður það refsivert ef ráðherra er fundinn sekur um slíkt athæfi. Verði frumvarpi að lögum mun það veita ráðherrum nauðsynlegt aðhald og styrkja erftirlitshlutverk Alþingis með framkvæmdavaldinu.