19. mars 2001
2.5 milljónir fyrir að skýra hæstaréttardóma
Heildarfjöldi greiddra vinnustunda 203 vegna öryrkjadómsins
Í svarinu er enn einu sinni reynt að bera fyrir sig upplýsingalögum til að þurfa ekki að svara
öllum spurningum sem fyrir forsætisráðherra voru lagðar. Þannig er því ekki svarað hvernig launin hafi skipts á milli nefndarmanna og starfsmanna hvorrar nefndar um sig. Aðeins er gefinn upp heildarfjöldi greiddra vinnustunda, sem var 203 stundir vegna öryrkjadómsins og 165 vegna fiskveiðistjórnunardómsins. Heildargreiðslur fyrir utan virðisaukaskatt voru 1.332.780 vegna öryrkjadómsins og vegna dómsins um stjórn fiskveiða 825.000 fyrir utan virðisaukaskatt.
Þóknunin nemur fimmtung af greiðslum til 676 öryrkja
Samkvæmt því er meðaltalsgreiðsla fyrir hverja klukkustundar vinnu við öryrkjadóminn tæpar 7 þúsund krónur á tímann, án virðisaukaskatts.
Það segir þó lítið, því reikna má með að formaður lögfræðinganefndarinnar Jón Steinar Gunnlaugsson og Jón Sveinsson hæstaréttarlögmaður hafi fengið bróðurpartinn af 1.4 milljón króna greiðslunni, en auk þeirra komu greiðslur í hlut tveggja ritara nefndarinnar. Í sjónvarpinu í byrjun febrúar kom fram að tveir af fjórum nefndarmönnum hafi ekki fengið greiðslur þóknun vegna öryrkjadómsins, þar sem þeir störfuðu innan ráðuneytanna.
Það verður því að teljast ansi háar greiðslur sem nálgast allt að 1700 þúsund með virðisaukaskatti sem ætla má að mestu hafi runnið til tveggja nefndarmanna. Athyglisvert er að þessar háu þóknanir sem að mestu ganga til tveggja lögfræðinga samsvarar nálægt 20% af þeirri greiðslu sem kom í hlut 676 einstaklinga vegna öryrkjadómsins.