Forsíða
Pistlar
Greinar
Um Jóhönnu
Á Alþingi
Senda póst
Jóhanna Sigurðardóttir
 

Skráning á póstlista
Pistlar
Greinar
Netfang:






 
10. júní 2002

Heimska eða undirlægjuháttur

Ganga gegn vilja þjóðarinnar
Það verður að fást fram í dagsljósið hvort satt sé að íslensk stjórnvöld séu með þessu að knékrjúpa fyrir kínverskum stjórnvöldum með því að verða við ósk þeirra um að meina meðlimum Falun Gong hreyfingarinnar að koma til landsins. Sé málið þannig vaxið, þá er það íslenskum stjórnvöldum til ævarandi skammar, og setur alvarlegan blett á Ísland á alþjóðavettvangi sem vill láta taka sig alvarlega í mannréttindamálum. Íslendingar vilja vera í fremstu röð þjóða sem berjast fyrir auknum mannréttindum og fordæma harðlega hvers kyn mannréttindabrot. Það verður ekki liðið að stjórnvöld gangi gegn þessum vilja þjóðarinnar annað hvort af heimsku eða undirlægjuhættu við kínversk stjórnvöld.
Hlægilegar viðbárur
Ísland er fyrsta lýðræðisríkið sem meinar meðlimum Falun Gong að koma til landsins. Viðbárur stjórnvalda um að hér sé verið að tryggja allsherjarreglu með því að koma í veg fyrir hættu sem kunni að steðja að bæði forsetanum, fylgdarliði hans og mótmælendum eða almenningi er beinlínis hlægileg. Hvers vegna er það svo að aðrar þjóðir hafa bæði talið sig geta tryggt allherjareglu m.a. um öryggi þjóðhöfðinga og jafnframt boðið velkomin friðsöm alþjóðasamtök sem mótmæla mannréttindabrotum? Afhverju treysta íslensk stjórnvöld sér ekki til hins sama? Eru skýringar dómsmálaráðherra og annarra ráðherra e.t.v. settar fram til að breiða yfir hve fámennt lögregluliðið er hér á landi og að ekki sé áhugi á að setja fjármagn til að auka tímabundið við lögregluliðið eins og gert var vegna Nató fundarins? Sé það svo er það ekkert annað en heimska og dómgreindarleysi. Það verður að fá fram í dagsljósið. Þjóðin á heimtingu á því að stjórnvöld láti þegar af áformum sínum, þannig að Íslendingar verði áfram á bekk með þjóðum sem af einlægni, staðfestu og heiðarleika, berjast gegn mannréttindabrotum og skoðanakúgun í heiminum



 
 
  Forsíða | Pistlar | Greinar | Um Jóhönnu | Á Alþingi | Senda póst