Forsíða
Pistlar
Greinar
Um Jóhönnu
Á Alþingi
Senda póst
Jóhanna Sigurðardóttir
 

Skráning á póstlista
Pistlar
Greinar
Netfang:






 
13. júní 2002

Sár og reið

Þung undiralda- fjölmenn mótmæli
Undirlægjuháttur stjórnvalda og dæmalausar aðgerðir stjórnvalda bjóða því heim, þvert á tilgang stjórnvalda, að mótmælin verða kröftugri og áhrifameiri, en annars hefði orðið. Þau munu vekja mikla athygli á erlendum vettvangi og hin þunga undiralda sem nú er í þjóðfélaginu vegna þessa máls mun koma fram í fjölmennum mótmælum nú við komu forseta Kína. Flestir Íslendingar hefðu sjálfsagt látið fram hjá sér fara heimsókn forseta Kína til landsins- og treyst á að stjórnvöld hér á landi kæmu fram mótmælum íslensku þjóðarinnar við mannréttindabrotum í Kína. Annað mun kom á daginn. Í stað 2-300 liðsmenn Falon Gong mun Íslendingar –líklega þúsundum saman mótmæla þessari aðför stjórnvalda, sem misbjóða
mjög þjóðinni.
Fruntaleg aðför
Íslendingum mun seint líða úr minni fruntaleg aðför stjórnvalda að þessum mótmælendum mannréttindabrota í Kína. Fáir hefðu hingað til haft það hugarflug að ætla að íslensk stjórnvöld myndu neita að veita friðsömu fólki landgönguleyfi og loka það inni á þeim hæpnu forsendum sem ráðamenn beita. Það er auðvitað ekki boðleg skýring að nokkur hundruð liðsmenn Falon Gong hefðu tekið öll ráð í sínar hendur hér á landi, ef ekki hefði komið til aðgerða stjórnvalda. Með svona skýringu er gert lítið úr þjóðinni, – lítið úr lögregluliði okkar. Með góðri skipulagningu og nokkurri aukningu í lögregluliðinu og umfram allt heilbrigðri skynsemi stjórnvalda, hefði þessi hneisa ekki þurfta að ganga yfir þjóðina.



 
 
  Forsíða | Pistlar | Greinar | Um Jóhönnu | Á Alþingi | Senda póst