Forsíða
Pistlar
Greinar
Um Jóhönnu
Á Alþingi
Senda póst
Jóhanna Sigurðardóttir
 

Skráning á póstlista
Pistlar
Greinar
Netfang:






 
26. júní 2002

Þjónkun við stjórnvöld

Sagði forsætisráðherra ósatt?
Í viðtali við forsætisráðherra i Mbl. s.l. sunnudag sagði hann orðrétt:” En í öllu þessu máli skiptir mestu að það var mat lögregluyfirvalda að lögreglan treysti sér ekki til að tryggja öryggi forseta Kína og sendinefndar hans nema fylgjendum Falun Gong yrði meinuð landganga hér. Það hefði verið ábyrgðarlaust af hálfu stjórnvalda að hafa að engu ráðleggingar þeirra og álit sem best þekkja til” Þetta segir forsætisráðherra blygðunarlaust, þó formaður Landssambands lögreglumanna hafi sagt að íslenskir lögreglumenn treystu sér fyllilega til að tryggja öryggi Kínaforseta þrátt fyrir Falun-Gong-fólkið eins og það var orðað í einum fjölmiðli nýlega. Bætti hann því svo við að fullyrðingar stjórnvalda um hið gagnstæða far í taugarnar á mörgum lögreglumönnum.
Lögreglan gerð að blóraböggli
Alþingi ber skyld til að leiða það sanna fram í þessu máli. Í öðru löndum hefði verið farið í saumana á því hvort forsætisráðherra hefði farið með rangt mál og væri að ósekju að breiða yfir vanhugsaðar og umdeildar aðgerðir með því að gera lögregluna að blóraböggli í málinu. Það er ekki bara rétt og eðlilegt að allsherjarnefnd kanni málið heldur skylda hennar. Verði ekki orðið við eðlilegri beiðni Samfylkingarinnar um að allsherjarnefnd Alþingis kalli til lögregluyfirvöld til að fá upplýsingar um aðgerðir stjórnvalda og sannreyna hvort forsætisráðherra fari með rétt mál, þá er það ekkert annað en þjónkun meirihluta nefndarinnar við stjórnvöld. Það er ekki hægt að líða að það verði bara látið liggja milli hluta hvað er rétt og satt í þessu máli.



 
 
  Forsíða | Pistlar | Greinar | Um Jóhönnu | Á Alþingi | Senda póst