Forsíða
Pistlar
Greinar
Um Jóhönnu
Á Alþingi
Senda póst
Jóhanna Sigurðardóttir
 

Skráning á póstlista
Pistlar
Greinar
Netfang:






 
11. júlí 2004

Allt fyrir stólinn

Hrun Framsóknarflokksins sem birtist í skoðanakönnun Fréttablaðsins í dag kemur ekki á óvart. Þeir láta íhaldið niðurlægja sig og beygja í hverju málinu á fætur öðru og virðast una sér bærilega í því hlutverki að vera hækja íhaldsins. Allt fyrir stólinn hans Halldórs 15. september n.k., sem sannarlega er orðinn þjóðinni dýrkeyptur. Nöturlegt er það hlutskipti formanns Framsóknarflokksins að taka við forsætisráðherrastólnum þegar flokkurinn mælist með 7.5% fylgi og það vegarnesti að tæplega 60% kjósenda hans hafa snúið við honum baki. Erlendis hefði það verið óhugsandi að fylgislaus flokkur væri að taka við stjórnartaumum í lýðræðisríki. Enn ömurlegra er það þó fyrir þjóðina að stija uppi með það að nýr forsætisráðherra hefur í aðdraganda valdatöku sinnar gefið þjóðinni langt nef með því að stela af henni lögmætum og stjórnarskrárvörðum rétti til þjóðaratkvæðagreiðslu.

Loddaraleikur og brellibrögð
Stærstur hluti þjóðarinnar hefur fengið sig fullsadda af þeim loddaraleik og brellubrögðum sem stjórnarflokkarnir hafa orðið uppvísir að ekki síst nú í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem flokkarnir rændu af þjóðinni. Enda er ekki bara framsóknarflokknum refsað í skoðanakönnun Fréttablaðsins nú heldur einnig stjórnarflokkunum báðum, en ríkisstjórnin hefur misst stuðning fjórða hvers kjósenda frá því í síðustu kosningum. Það verður athyglisvert að fylgjast með því hvort flokkarnir láti sér þetta að kenningu verði og skilji að þeir hafa ekki umboð þjóðarinnar til að þjösnast svona áfram eins og þeir hafa gert. Bæði með því að vanvirða stjórnaskránna og rétt fólks til þjóðaratkvæðagreiðslu.

Kokgleypa þeir málið eða snúast til varnar lýðræðinu
Staðreyndin er sú að það sem keyrir ákvarðanir stjórnarflokkanna áfram er valdhroki Davíðs og gífurleg löngun Halldórs til að verða forsætisráðherra hvað sem það kostar. En nú hafa þeir misboðið þjóðinni svo með ótrúlegri ósvífni sinni að ekki er ólíklegt að það verði þeim að falli. Eina spurningin sem eftir stendur hvað kokvíðir þingmenn framsóknarmenn verða við atkvæðagreiðsluna um þetta ósvífna frumvarp ríkisstjórnarinnar. Munu þeir kokgleypa það eins og ævinlega eða munu þeir snúast til varnar lýðræðinu? Allir skilja að það er verið að sýna þjóðinni vanvirðu og gefa henni langt nef með því að taka af þjóðinni réttinn til þjóðaratkvæðagreiðslu í blóra við stjórnarskránna. Og steininn tekur úr þegar Alþingi á um leið að samþykkja nánast sömu lög og forseti lýðveldisins hafði falið þjóðinni að taka afstöðu til í þjóðaratkvæðagreiðslu. En nýju lögin eru dúsan fyrir Davíð og verðið fyrir stólinn hans Halldórs í haust.

Upphafið að endalokum ríkisstjórnarinnar
Svo mikill er valdhrokinn og græðgin í forsætisráðherra stólinn að oddvitar stjórnarflokkanna halda að þeir komist upp með hvað sem er. En þeim mun skjátlast í því efni. Líklegt er að sagan muni skrá að fjölmiðlamálið og hvernig þeir rændu þjóðinni rétti sínum til þjóðaratkvæðagreiðslu hafi verið upphafið að endalokum þessarar ríkisstjórnar.



 
 
  Forsíða | Pistlar | Greinar | Um Jóhönnu | Á Alþingi | Senda póst