Forsíða
Pistlar
Greinar
Um Jóhönnu
Á Alþingi
Senda póst
Jóhanna Sigurðardóttir
 

Skráning á póstlista
Pistlar
Greinar
Netfang:






 
7. febrúar 2007

Gott hjá Magnúsi

Ástæða er til að fagna yfirlýsingu félagsmálaráðherra á Alþingi í dag þegar hann svaraði fyrirspurn minni um fæðingarorlof. Ráðherrann lýsti því yfir að hann hefði í dag gefið út reglugerð sem kveður á um að fyrri fæðingarorlofsgreiðslur verði ekki lagðar til grundvallar viðmiðunartekjum fæðingarorlofsgreiðslna eins og gerst hefur þegar stutt er á milli fæðinga barna í fjölskyldu. Með þessu var ráðherra að fallast á niðurstöðu Umboðsmanns Alþingis sem úrskurðað hefur að þessi framkvæmd hafi ekki stoð í lögum. Um þó nokkur tilvik er að ræða sem lent hafa í þessari skerðingu vegna þessarar fráleitu framkvæmdar á lögunum en skerðingar á 9 mánaða tímabili hafa geta numið fast að 300 þúsund krónum. Af svari ráðherra við fyrirspurn minni má ætla að þeir sem lent hafa í þessum ólögmætu skerðingu geti vænst þess að fá endurgreiðslu á þessum skerðingum.

Viðurkennd ósanngjörn framkvæmd fæðingarorlofslaganna
Ýmsir agnúar hafa komið fram á framkvæmd fæðingarorlofslaganna. Auk þeirrar sem hér hefur verið lýst þá krafði ég ráðherrann fyrr á þessu þingi um að breyta þeirri framkvæmd að umönnunargreiðslu vegnar fatlaðra barna væru ekki greiddar samtímis fæðingarorlofsgreiðslum. Það er auðvitað fráleit túlkun í ljósi þess að um eðlisólíkar greiðslur er að ræða, en umönnunargreiðslur eru greiddar vegna kostnaðar sem foreldra verða fyrir sérstaklega vegna fötlunar barna sinni. Félagsmálaráðherra brást þá við fyrirspurn minni á Alþingi og breytti framkvæmdinni, þannig að nú fara umönnunargreiðslur saman með greiðslum í fæðingarorlofi. Nú hefur félagsmálaráðherra enn á ný brugðist við eins og rétt er og hyggst hætta að leggja fæðingarorlofsgreiðslur til grundvallar útreikningi viðmiðunartekna þegar stutt er á milli fæðingar barna í fjölskyldu. Með þessum tveim breytingum sem núverandi félagsmálaráðherra hefur beitt sér fyrir hefur verið viðurkennd að framkvæmdin var óeðlileg og ósanngjörn og hefði fyrir löngu átt að vera búið að færa málin í það horf sem Magnús félagsmálaráðherra hefur nú gert. Ástæða er til að hrósa Magnúsi fyrir það.

Umboðsmaður Alþingis skoði óréttlætið í skerðingu orlofsgreiðslna í fæðingarorlofi
En óréttlætið í framkvæmd fæðingarorlofslaganna eru ekki þar með öll úr sögunni. Magnús þarf líka að snúa við þerri neikvæðu þróun sem orðið hefur á fæðingarorlofslögunum sem er sú að stytta viðmiðunartímabilið sem lagt er til grundvallar fæðingarorlofsgreiðslum úr 12 mánuðum í 2 ár sem í sumum tilvikum getur orðið meira en tvö ár. Þessi breyting var gerð fyrir ca 2-3 árum síðan og hefur leitt til þess að fæðingarorlof er ekki 80% af launum heldur er það komið niður í 72-74% af launum þannig að fæðingarorlofsgreiðslur hafa skerst verulega. Full ástæða er til að ætla að þessi breyting geti orðið til þess að feður sem iðurlega eru með hærri laun en mæðurnar treysti sér ekki til að taka fæðingarorlof þegar skerðingin er orðin svona mikil á tekjum. Auk þessa má benda á að það er fullkomlega óeðlileg framkvæmd á fæðingarorlofslögunum að þeim sem fara í fæðingarorlof er mismunað í orlofstöku eftir því hvort þeir eru starfa hjá hinu opinbera eða á almenna vinnumarkaðnum. Opinberir starfsmann fá óskert orlof meðan fæðingarorlofsgreiðslur skerða orlof hjá þeim sem eru á almenna vinnuarmarkaðnum. Ástæða er til að Umboðsmaður Alþingis taki það mál til sérstakra skoðunar hvort það standist jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.



 
 
  Forsíða | Pistlar | Greinar | Um Jóhönnu | Á Alþingi | Senda póst