Forsíða
Pistlar
Greinar
Um Jóhönnu
Á Alþingi
Senda póst
Jóhanna Sigurðardóttir
 

Skráning á póstlista
Pistlar
Greinar
Netfang:






 
3. mars 2007

Tvö andlit Framsóknar

Framsóknarflokkurinn er á miklum villigötum ef hann heldur að hann geti blekkt þjóðina með því að gangast ekki við Sjálfstæðisflokknum á síðustu metrum 12 ára stjórnarsamstarfs. Framsóknarmenn hafa verið fangar Sjálfstæðisflokksins allan þennan tíma og í hverju málinu á fætur öðru gengið í björg hjá íhaldinu. Þeir hafa ekki hikað við að svíkja stefnu sína og kjósendur. Í tíð þeirra hefur öryggisnet velferðarkerfisins brostið á sama tíma og mulið hefur verið undir auðmenn sem einir hafa notið skattalækkana í valdatíð blágræna bandalagsins. Það er því afar aumkunarvert að sjá hvernig framsóknarmenn rúnir fylgi og trausti hjá þjóðinni reyna í aðdraganda kosninga að skilja sig frá íhaldinu sem þeir eru orðnir samdauna eftir 12 ára valdasetu. Svo vel þekki ég orðið Framsóknarflokkinn að ég spáði því fyrir jólin að þeir myndu leika þennan leik í aðdraganda kosninga.


Fara aftur undir sæng íhaldsins
Það er auðvitað beinlínis hlægilegt þegar ráðherrar Framsóknarflokksins hóta stjórnarslitum nú rétt fyrir kosningar, þegar allir vita að fái þeir til þessa minnstu möguleika að loknum næstu kosningum munu þeir hlaupa rakleiðis undir sæng íhaldsins aftur. Hótunin um stjórnarslit getur ekki verið gegnsærri því framsóknarmenn hafa ekkert gert á kjörtímabilinu til að þrýsta á um að sameign þjóðarinnar á auðlindum verði bundin í stjórnarskránni. Þeir bera líka mesta ábyrgð á því að sjávarauðlindin er komin í hendur örfárra kvótakónga. Nei, auðvitað munu framsóknarmenn ekki komast upp með að fella blágrænu grímuna rétt fyrir kosningar og dulbúa sig sem hið milda umbótaafl á miðju stjórnmálanna.

Sviðsettur farsi
Þeir verða rækilega minntir á hvernig þeir kokgleyptu öll kosningaloforðin frá síðustu kosningum og fylgdu íhaldinu allt kjörtímabilið eins og þægur rakki í óheftri frjálshyggju sem leitt hefur til mikils ójöfnuðar og misskiptingar í þjóðfélaginu. Það þýðir því lítið núna að ætla að hlaupa úr fanginu á íhaldinu rétt fyrir kosningar, yggla sig framan í þá og þykjast vera að sýna þeim klærnar. Þjóðin mun sjá í gegnum þennan sviðsetta farsa þeirra. Þjóðin hefur nefnilega fengið nóg af Framsóknarflokknum og sviknum kosningaloforðum hans. :Þjóðin veit að greiði hún Framsóknarflokknum atkvæði sitt í næstu kosningum er verið að framlengja líf blágræna bandalagsins. Komi til skilnaðar þessa tveggja flokka að borði og sæng næstu tvo mánuði er það bara sýndarmennska.



 
 
  Forsíða | Pistlar | Greinar | Um Jóhönnu | Á Alþingi | Senda póst