Forsíða
Pistlar
Greinar
Um Jóhönnu
Á Alþingi
Senda póst
Jóhanna Sigurðardóttir
 

Skráning á póstlista
Pistlar
Greinar
Netfang:






 
12. mars 2007

Alvarlegar aðdróttanir að fjölmiðlum

Magnús Þór Hafsteinsson þingmaður Frjálslynda flokksins kvartaði yfir því á Alþingi fyrir helgi að fjölmiðlar fjölluðu lítið um málefni innflytjenda. Skýringin var sú að eigendur fjölmiðla vildu viðhalda núverandi þensluástandi sem innflutt vinnuafl héldi uppi. Magnús sagði að stærsti hluti fjölmiðla á Íslandi væru í vasanum á fjármagnseigendum og það hentaði ekki hagsmunum þeirra að fjalla mikið um málefni innflytjenda. Hér var þingmaðurinn með mjög alvarlegar aðdróttanir að í garð fjölmiðla og fer yfir öll velsæmismörk í atkvæðaveiðum sínum.

Verða að vanda betur málflutning sinn
Á mannamáli var þingmaðurinn að segja að eigendur fjölmiðla segðu blaðamönnum og ritstjórn fjölmiðla fyrir verkum og þess vegna væri ekki nægjanlega mikið fjallað um málefni innflytjenda í fjölmiðlum. Ég get verið sammála um að ástæða er til að fjalla meira um málefni innflytjenda og stöðu þeirra hér á landi og hvað við getum gert til að búa betur að þeim og koma í veg fyrir undirboð í kjörum þeirra og aðbúnaði. En það er auðvitað fráleitt eins og þingmaðurinn lét að liggja að eigendur fjölmiðla ritstýrðu fjölmiðlum og þess vegna væri ekki meira um málefni þeirra fjallað í fjölmiðlum. Ef Frjálslyndi flokkurinn vill láta taka sig alvarlega í mjög nauðsynlegri umræðu um stöðu innflytjenda hér á landi verða þeir að vanda betur málflutning sinn til að þeir verði teknir alvarlega.

Forysta Samfylkingarinnar í málefnum innflytjenda
Þessi orð lét þingmaðurinn falla í umræðu um mjög veigamikið frumvarp sem við þingmenn Samfylkingarinnar höfum verið að kalla eftir til að vernda betur réttindi og kjör launafólks hér á landi. Frumvarpið felur í sér að verið er að herða á öllum lagaákvæðum til að koma í veg fyrir að erlent vinnuafl væri hér á lélegri kjörum en íslensku lög og kjarasamningar kveða á um. Enginn flokkur hefur látið sig meira varða að tryggja grundvallarréttindi launamanna hér á landi varðandi kaup og kjör en Samfylkingin og að koma erlends vinnuafls rýrðu ekki kjör þeirra. Má þar einnig nefna að það eru bráðum áratugur síðan að Samfylkingin flutti fyrstur flokka tillögu hér á landi um málefni innflytjenda. Í haust flutti Samfylkingin síðan þingsályktunartillögu um stefnumótun í málefnum innflytjenda. Vonandi bera talsmenn Frjálslynda flokksins gæfu til að halda uppi málefnalegri umræðu um þetta þýðingarmikla mál sem staða innflytjenda hér á landi er. Þar er grundvallaratriði að vernda kjör og aðbúnað launafólks – innlend sem erlends- þannig verða mannréttindi og atvinnuöryggi launafólks hér á landi best tryggð.



 
 
  Forsíða | Pistlar | Greinar | Um Jóhönnu | Á Alþingi | Senda póst