Forsíða
Pistlar
Greinar
Um Jóhönnu
Á Alþingi
Senda póst
Jóhanna Sigurðardóttir
 

Skráning á póstlista
Pistlar
Greinar
Netfang:






 
14. mars 2007

Hjálpum Íslendingnum í Greensville-fangelsinu

Utanríkisráðherra mun væntanlega nú í vikunni svara fyrirspurn minni um Íslendinginn, Geir Þórisson, sem nú afplánar 20 ára fangelsisdóm í Greensville-fangelsinu í Virginíufylki í Bandarikjunum. Í þessu fangelsi, sem er öryggisfangelsi, eru vistaðir hættulegustu glæpamenn Virginíufylkis. Ráðherra er spurður hvort hún hyggist beita sér fyrir því að Geir eigi þess kost að koma hingað til lands og ljúka afplánun hér, en hann lifir nú í stöðugum ótta um líf sitt. Geir sem er 34 ára gamall hefur nú setið inní 9 ár fyrir mjög alvarlega líkamsárás og rán, sem sannarlega er refsivert en 20 ára fangelsisdómur var þó í engu samræmi við verknaðinn. Geir var sakfelldur 1998 en fyrirfram var búist við að hann fengið 4-7 ára fangelsisdóm. Hann hefur sótt um að vera framseldur til Íslands en þeim óskum hefur verið hafnað af yfirvöldum í Virginíu.

Óttast um líf sitt
Kastljós var nýverið með afar sláandi umfjöllun um Geir Þórisson og þann ómanneskjulega aðbúnað sem honum er búinn í Greensville-fangelsinu. Lýsingar fangans voru skelfilegar. Hann lifir í stöðugum ótta um líf sitt og mikið er um ofbeldi í fangelsinu en Geir hefur hlotið þar alvarlega áverka, beinbrot o.fl. og oft þurft að slást fyrir lífi sínu innan fangelsismúranna. Lýsing hans er sú að daglegt líf sé harkalegt og grimmt en erfiðast finnst Geir þegar fangar eru teknir af lífi en þetta fangelsi er það eina í Virginíu sem framfylgir dauðarefsingum, sem gerist nokkrum sinnum á ári. Í viðtalinu kom fram að Geir líti þannig á að ekki sé víst að hann komi lifandi út. Lýsing hans er hrikaleg; hann gæti verið drepinn eða þurft að drepa vegna ofbeldisins sem þarna ríkir.

Afskipti utanríkisráðherra af málinu réttlætanleg
Það er ekki bara þessi skelfilegi aðbúnaður sem réttlætir það að utanríkisráðherra beiti sér fyrir því að Geir eigi þess kost að koma hingað til lands og ljúka afplánun hér. Fram kom einnig í Kastljósi að Geir hafi verið útvegaður verjandi af bandarískum yfirvöldum, þar sem hvorki hann né foreldrar hans höfðu efni á að borga verjanda. Fram kom í Kastljósþættinum að verjandinn hefði gert lítið gagn. Ekki var búist við svo löngum dómi. Í aðdraganda réttarhaldanna var talið að 4-7 ára dómur væri líklegur þar sem Geir hafði ekki brotið af sér áður. Nú hefur hann afplánað 9 ár af 20 ára dómi sem hann fékk. Talið er að hér á landi hefði Geir fengið að hámarki 6 ára dóm fyrir sambærilegt brot og losnað út eftir 4 ár. Fróðlegt verður að fylgjast með hvort utanríkisráðherra mun beita sér í þessu máli, þannig að Geir Þórisson eigi möguleika á mannúðlegri meðferðar það sem eftir er af afplánun dómsins.



 
 
  Forsíða | Pistlar | Greinar | Um Jóhönnu | Á Alþingi | Senda póst