Forsíða
Pistlar
Greinar
Um Jóhönnu
Á Alþingi
Senda póst
Jóhanna Sigurðardóttir
 

Skráning á póstlista
Pistlar
Greinar
Netfang:






 
26. mars 2007

Tvískipt tannheilbrigðiskerfi barna

Ekki verður lengur dregið að auka endurgreiðslu á tannlæknakostnaði barna og unglinga. Að öðrum kosti stefnir hér í tvískipt tannheilbrigðiskerfi en fyrir liggur að vaxandi fjöldi barna fer ekki til tannlæknis eða í forvarnaraðgerðir vegna mikils kostnaðar. Foreldrar hafa þurft að taka á sig gífurlegan kostnað á umliðnum árum vegna deilna Tryggingastofnunar ríkisins og Tannlæknafélags Íslands. Heilbrigðisráðherra á að fara að ráðum tryggingatannlæknis sem sett var fram fyrir ekki löngu síðan að þegar þyrfti að semja um fasta gjaldskrá við tannlækna og hækka um leið endurgreiðsluna í 100% a.m.k. vegna forvarnaraðgerða.

Aðgerðarleysi heilbrigðisráðherra
Almannatryggingalögin kveða á um 75% endurgreiðslu kostnaðar samkvæmt gjaldskrá ráðherra vegna almennra tannlækninga. Í svari ráðherra til mín á nýafstöðnu þingi kemur fram að endurgreiðsla Tryggingastofnunar á árinu 2005 hafi ekki verið nema 59-61% af heildarverði reikninga. Skýringin er deila sem staðið hefur yfir um endurgreiðsluna milli Tryggingastofnunar og Tannlæknafélag Íslands sem staðið hefur frá árinu 1999. Samkvæmt svörum heilbrigðisráðherra til mín á árinu 2005 og aftur 2006 má áætla að á mismunur á endurgreiðslu Tryggingastofnunar og heildarverði á reikningum tannlækna komi um 350 milljónir á hverju ári í hlut foreldra vegna tannlækna barna sinna. Ítrekað hefur á umliðnum árum verið kallað eftir því við heilbrigðisráðherra að auka þátttöku ríkisins í forvarnaraðgerðum og tannheilsu barna, en ráðherrann ekkert aðhafst

Aðvaranir tryggingatannlæknis
. M.a. gerði ráðherrann ekkert með aðvaranir tryggingatannlæknis fyrir ca 2-3 árum síðan sem kallaði eftir því að endurgreiðslan yrði hækkuð í 100%. Afleiðingarnar eru nú að koma í ljós. Fjöldi barna fer ekki til tannlæknis vegna þessa að kostnaður er foreldrum ofviða og því hafa börn ekki jafnan aðgang að tannheilsukerfi landsmanna. Ekki er langt síðan að niðurstaða rannsókna sýndi að um 30% 16 og 17 ára unglinga fara ekki til tannlæknis og 50% þriggja ára barna. Nýlega niðurstaða landsrannsóknar á tannheilsu barna, sem m.a. kom fram í svari heilbrigðisráðherra til mín á nýverið, sýnir skelfilegar afleiðingar þess. Heilbrigðisráðherra skuldar barnafjölskyldum að bregðast þegar við, því sofandaháttur ráðherra heilbrigðisráðherra í þessum málum á umliðnum árum er ekki hægt að líða lengur.



 
 
  Forsíða | Pistlar | Greinar | Um Jóhönnu | Á Alþingi | Senda póst