Forsíða
Pistlar
Greinar
Um Jóhönnu
Á Alþingi
Senda póst
Jóhanna Sigurðardóttir
 

Skráning á póstlista
Pistlar
Greinar
Netfang:






 
2. apríl 2007

Endurreisum barnvænt samfélag

Þrír forsætisráðherrar, Davíð Oddson, Halldór Ásgrímsson og Geir Haarde hafa hunsað vilja Alþingis frá 2001 þegar þingið samþykkt að unnin yrðu heildarstefnumótun í málefnum barna og ungmenna. Á grundvelli þessara stefnumótunar átti að gera 5 ára framkvæmdaáætlun í samráði við opinberar stofnanir og félagasamtaka sem vinna að málefnum barna og unglinga. Markmiðið stefnumótunar var að tryggja hag og velferð barna og unglinga á öllum sviðum þjóðlífsins og búa þeim sem best og jöfnust skilyrði til uppvaxtar og þroska. Framkvæmdaáætlunina átti að leggja fyrir Alþingi árið 2002. Stefna Samfylkingarinnar í málefnum barna er svar við þessum sofandahætti stjórnvalda en aðgerðaráætlun okkar mun gjörbreyta aðbúnað og umhverfi barna. Fyrstu skrefin verða m.a. að auka stuðning við barnafjölskyldur með verulegum endurbótum á barnabótakerfinu,stórauknum stuðningi við tannheilsu barna og námsbækur verði framhaldsskólanemum að kostnaðarlausu."

Aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar
Umboðsmaður barna hefur í meira en áratug kallað á þessa stefnumótun en á hinum Norðurlöndunum hefur verið í gildi í marga áratugi heildarstefnumótun og aðgerðaráætlun í málefnum barna og unglinga. Skýrsla sem unnin var á vegum forsætisráðuneytisins og 130 sérfræðingar komu að sýndi að mikil brotalöm er í þessum málaflokki, en börn og ungmenna á landinu er um 84 þúsund. Gagnrýnt var að alla heildarsýn vanti og skortur sé á samhæfingu og pólitískri stefnumótun. Miklum agnúum var lýst á á bóta- og velferðarkerfinu varðandi hag barna m.a. að bætur velferðarkerfisins séu svo naumt skammtaðar að þær hrökkvi ekki fyrir lágmarksframfærslukostnaði – og skorti þar mikið á, enda væri fátækt fólks oft fast í svonefndri fátæktargildru. Sérstaklega var nefnt að úrbóta sé þörf í málefnum fátækra barna, nýbúabarna, barna með geðraskanir og barna og ungmenna í vímuefnavanda. Einnig kom fram hve fljótt dregur úr skóalsókn ungmenna því einungis innan við helmingur tvítugra ungmenna stunda nám. Fram kom einnig að slys á börnum og unglingum sem leita á slysadeild séu tíðust á Íslandi í samanburði við Norðurlöndin, en hlutfallslega slasast helmingi fleiri börn á Íslandi en t.d. í Svíþjóð. Grafalvarlegt er líka að fram kemur að kynferðisleg misnotkun barna sé stórum útbreiddari en álitið hafði verið og nær fimmta hvert barn sem nær 18 ára aldri hefur orðið fyrir henni. Jafnvel þó svona svört skýrsla liggi fyrir þá hefur ríkisvaldið hunsað vilji Alþingis frá árinu 2001 um stefnumótun og aðgerðaráætlun til að bæta hag barn og ungmenna.

Bitnaðmeð ofurþunga á barnafjölskyldum
Skerðingar á bóta- og velferðarkerfinu hefur komið afar þungt niður á barnafjölskyldum. Þar ber hæst rúmlega 10 milljarða króna skerðing á barnabótum og skerðing á skattleysismörkum sem væru í dag 137 þúsund í stað rúmlega 90 þúsund ef þau hefðu fylgt launavísitölu. Jafnframt hefur verið komið í bakið á unga fólkinu og íbúðarkaupendum almennt með því skerða vaxtabætur. Það er gert á sama tíma og verðlag á íbúðarhúsnæði hefur tvöfaldast á s.l. 5 árum og útborgun á sambærilegri þriggja herbergja íbúð aukist úr 1 milljón í 5 milljónir. Niðurgreiðsla ríkisins á tannlæknakostnaði barna hefur dregist svo saman að það stefnir í tvískipt tannheilsukerfi en fólk með lágar og meðaltekjur á afar erfitt með að standa undir kostnaði við tannheilsu barna sinna.

Börnin í forgang
Eitt brýnasta verkefnið nú er að endurreisa barnvænt samfélag eins og við í Samfylkingunni höfum boðað. Ég fullyrði að engin flokkur hefur sinnt betur málefnum barna og ungmenna á þingi en þingflokkur Samfylkingarinnar. Í aðdraganda alþingiskosninga nú leggjum við fram mjög ítarlega stefnumótun í þessum málaflokki undir kjörorðinu stöndum vörð um börnin okkar-fjárfestum í framtíðinni. Lögð er fram heildstæð stefnumótun og aðgerðaráætlun í málefnum barna og ungmenna. Sérstaklega verður gripið til aðgerða til að draga úr fátækt barna. Fyrstu skrefin verða m.a. að auka stuðning við barnafjölskyldur með verulegum endurbótum á barnabótakerfinu,stórauknum stuðningi við tannheilsu barna og námsbækur verði framhaldsskólanemum að kostnaðarlausu. Jafnframt verður strax aukin aðstoð við unga fíkniefnaneytendur og barna með hegðunaerfiðleika. Einnig munum við auka vernd barna gegn kynferðisafbrotum Aðgerðaráætlunin felur líka í sér lengingu á fæðingarorlofi úr 9 mánuðum í 1 ár. Fæðingarorlof einstæðra foreldra verður aukið þannig að orlofstíminn verði ekki skemmri en hjá hjónum eða sambúðarfólki. Stefnt er að gjaldfrjálsum leikskóla og að öll börn geti tekið þátt í íþrótta og tómstundastarfi óháð efnahag. Það skiptir máli hverjir stjórna til að barnvænt samfélag verði endurreist. Forysta okkar jafnaðarmanna í ríkisstjórn mun tryggja það.



 
 
  Forsíða | Pistlar | Greinar | Um Jóhönnu | Á Alþingi | Senda póst